Riða.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. matvælaráðherra fyrir þessa umræðu og hennar orð og eins hv. þingmönnum sem hafa tekið hér þátt í umræðunni. Það er ánægjulegt að skynja þá samstöðu sem er hér í þessum sal um að gera betur en verið hefur. Það er sérstaklega ástæða til að hrósa matvælaráðherra, og ég hef áður gert það hér í þessum stól, fyrir þá vinnu sem hefur farið fram um að endurskoða reglur þannig að þær heimili að ekki sé skorið niður að öllu leyti í búfjárstofni þar sem ARR-gen er að finna. Þetta er allt mjög gott mál og það er von mín að hæstv. matvælaráðherra taki þau skilaboð sem koma héðan úr þessari umræðu og ráðist í alvöru í endurskoðun á því sem þarf að fylgja nú þegar þetta er staðan. Ég vil þá sérstaklega koma inn á það sem hv. þm. Bergþór Ólason og hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson nefndu varðandi afurðatjónsbæturnar í þeim tilvikum þar sem skorið er eingöngu niður að hluta, þ.e. að til að hefja aftur búskap þá þurfi að kaupa líflömb eða bæta við bústofninn á verði sem er mun hærra en bæturnar kveða á um. Það er nefnilega alveg rétt sem hv. þm. Oddný G. Harðardóttir kom hérna inn á, hvert er aðalatriði þessa máls: Það verður að gera bændum kleift að geta hafið búskap að nýju. Það er sú vegferð sem við erum að stefna að með því að útrýma riðu með þeim hætti sem við erum að leggja fyrir okkur og þá verðum við að fá bændur með okkur í lið, með stjórnvöldum, við að útrýma riðu þannig að þeir geti hafið búskap að nýju. Þetta hlýtur að vera lykilatriði þegar við horfum á það hvernig við ætlum að breyta reglugerðinni og regluverkinu um bætur. Ég fagna því líka sérstaklega sem hæstv. matvælaráðherra kom hérna inn á, að það er loksins að rofa til og verið að gera upp við bændur í Miðfirði. En ég minni á að það er enn ekki búið að gera upp við þá bændur sem þurftu að afhenda fé í sumar þar sem þeir höfðu fengið fé frá tilteknum bæjum. Þannig að það eru ýmis atriði sem þarf að klára og ég held áfram að hvetja hæstv. matvælaráðherra til dáða.