tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég ætla nú bara rétt að stíga í pontu til að leggja áherslu á það sem hv. þm. Guðmundar Einarssonar sagði, ég tek heils hugar undir það sem hann var að segja. Ég vil byrja á því að þakka formanni velferðarnefndar fyrir þetta nefndarálit og nefndinni fyrir samstarfið. Mér finnst það einkennandi fyrir aðkomu okkar í þinginu að þessu máli hvað við erum samtaka um að aðstoða Grindvíkinga í þeim hörmungum sem þar ríða yfir á þessum dögum og vikum. Ég hef talað mjög skýrt fyrir því að við tryggjum fjárhagslega afkomu og fjárhagslegt öryggi íbúa í Grindavík. Það er lykillinn að því að halda sæmilega sönsum í þessum erfiðleikum sem yfir dynja og þegar það þarf að huga að sálartetrinu og fjölskyldunni allri þá mega fjárhagsáhyggjur, eða alla vega óþarfa fjárhagsáhyggjur, ekki bætast við og við hér í þinginu og ríkisstjórnin eigum að gera hvað við getum til að létta þetta.
Velferðarnefnd var að funda í morgun um áframhaldandi stuðning við íbúa í Grindavík og þar er líka mikil samstaða og ég ætla rétt að koma hingað til að lýsa því yfir að við Sjálfstæðismenn styðjum heils hugar þær aðgerðir sem hér eru settar fram. Ég vek líka athygli á því að það eru allar líkur til þess að við þurfum að halda áfram að setja ný lög eða reglugerðir vegna þess að sviðsmyndin breytist stöðugt, frá degi til dags. Við skulum ekki kvíða því að þurfa að snúa við og taka nýjar ákvarðanir vegna þess að þegar náttúran er annars vegar þá ræður hvorki þing eða ráðherra för heldur er það hún sjálf sem tekur völdin og við þurfum að taka til máls og mæta þeim verkum sem við blasa á hverjum degi. Þetta upplifði ég sjálfur á sínum tíma úti í Vestmannaeyjum og átta mig vel á því að það sem við erum að gera í dag kannski dugar ekki nógu vel á morgun og þess vegna verðum við að vera tilbúin hér í þinginu að halda áfram. Og ég fagna þeirri samstöðu sem Grindvíkingar eiga skilið frá okkur úr þessum ræðustól.