154. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2023.

tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

508. mál
[17:13]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Frú forseti. Það er mikilvægt að hér hafi náðst þverpólitísk sátt um að tryggja afkomu Grindvíkinga, standa þétt með þeim á erfiðum tímum. Þegar Grindavíkurbær var rýmdur töluðu hæstv. ráðherrar fyrst um að nú gætu íbúar farið til Vinnumálastofnunar og sótt um atvinnuleysisbætur en eins og hv. formaður Samfylkingarinnar benti á eru jarðhræringarnar á Reykjanesskaga sérstök staða sem kallar á sértækar aðgerðir til að verja framfærslu fólks. Ég er feginn að það varð einmitt niðurstaðan hér á Alþingi, þetta frumvarp sem var vel unnið af hálfu félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins og af hálfu hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra og fékk skjóta en vandaða umfjöllun í velferðarnefnd.

Næst á dagskrá er svo húsnæðisstuðningurinn við Grindvíkinga, mál sem hefur nú verið lagt fram á Alþingi og verður, að mér skilst, mælt fyrir því á morgun. Við í Samfylkingunni höldum áfram að styðja ríkisstjórnina til þessara verka. Ég treysti því að við hér á Alþingi höldum áfram að gera allt sem í okkar valdi stendur til að veita Grindvíkingum og öðrum sem kunna að verða fyrir tjóni af völdum náttúruvár á Reykjanesskaga fullvissu um stuðning og samstöðu sama hvað á dynur því það er samtryggingin sem gerir okkur að sterku samfélagi og veitir fólki von þegar áföll ríða yfir.