Störf þingsins.
Forseti. Í dag langar mig aðeins að tala um drengi í samfélaginu og afbrot drengja. Birtingarmyndir vanda hjá ungu fólki geta verið alls konar; áhættuhegðun, leit í óæskilegan félagsskap, afbrot eða vímuefnaneysla, en aðrir einangra sig og mæta hvorki í skóla né sinna öðrum félagslegum og þroskandi þáttum. Drengir í áhættuhegðun eru í grunninn einstaklingar sem fengu ekki allt sem þeir þurftu frá samfélaginu. Þeir hafa mögulega orðið fyrir áföllum eða þörfum þeirra hefur ekki verið mætt. Þeir eiga það sameiginlegt að vilja tilheyra. Gildin þeirra og viðhorf eru það sem samfélagið kennir þeim. Ef þeir læra frá unga aldri að það sem þeir gera sé ekki nógu gott, þeir séu ekki jafn góðir og aðrir eða að fólki sé ekki treystandi þá er vandaverk fyrir samfélagið að breyta því.
Því langar mig að leggja áherslu á að við einbeitum okkur að því hvernig við bregðumst við drengjum og ungu fólki sem hagar sér á annan hátt en við viljum. Við vitum að ef við ætlum að fara í baráttu við þá þá breytist viðhorf þeirra til yfirvalda eða annarra ekki neitt. Ef við förum í vörn þá verjast þeir einnig. Það er gömul saga og ný. Enginn vill vera á þessari braut en oft upplifa drengir að þeir séu komnir út í horn, á meðferðarstofnanir eða í fangelsi, og að það sé engin leið til baka. Því skiptir ótrúlega miklu máli að við komum í veg fyrir að þeir veltist þar um. Við þurfum að vera með alvöru ígrunduð úrræði fyrir þennan hóp þar sem unnið er fyrst og fremst með gildi, viðhorf og framtíðarsýn. Það virkar ekki að reyna að höfða til þessa hóps án þess að skilja hvað liggur að baki og hvað drífur þetta fólk áfram í sömu hegðun.
Forseti. Ég mun seint þreytast á því að segja að þessir einstaklingar eiga það skilið að við grípum miklu fyrr inn í, áður en til fangelsisvistar kemur, og með mun markvissari hætti en gert er í dag. Samfélaginu ber að koma betur til móts við þá.