154. löggjafarþing — 39. fundur,  28. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[13:39]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Okkur ber hér á Alþingi að tryggja fjárhagslega stöðu fatlaðs fólks í samfélaginu, hvort sem það er í vinnu, hlutavinnu eða ekki í vinnu, og tryggja því full og óskert mannréttindi og þá einnig jafnrétti. Þá ber okkur einnig að tryggja það að fatlað fólk búi við mannsæmandi aðstæður í formi fæðis, klæða og húsnæðis og þá einnig í félags- og tómstundamálum. Hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra sagði við mig í umræðu um fatlað fólk orðrétt, með leyfi forseta:

„Þegar hafa ákveðin skref verið stigin og vil ég þar sérstaklega nefna að frítekjumörk vegna atvinnutekna voru hækkuð í upphafi þessa árs úr 110.000 kr. í 200.000 kr. á mánuði, en um er að ræða fyrstu hækkun á frítekjumarkinu frá árinu 2009 eða í tæp 14 ár.“

Spáið í það, 14 ár. Rétt uppreiknað væri frítekjumarkið vel yfir 400.000 kr. en ekki 200.000 kr. Það er alveg ótrúlegt fjárhagslegt ofbeldi en við skulum átta okkur á því að verst setta fatlaða fólkið okkar fær ekki krónu fyrir vinnu sína þrátt fyrir flottu frítekjumörkin þeirra. Nei, því sérstaka uppbótin skerðist um 65 aura á móti krónu og þá eru einnig keðjuverkandi skerðingar út í félagsbótakerfið sem taka allt.

Ekki er bara um fjárhagslegt ofbeldi að ræða. Ofbeldi gagnvart fötluðu fólki er því miður fjölbreytt. Það er ofbeldi gagnvart fólki í hjólastól. Það er borið út og fjölskyldur þeirra. Það er ofbeldi gagnvart fötluðum einstaklingi sem fær 120 kr. á tímann eða 4.197 kr. fyrir 35 klukkustunda vinnu. Hver myndi vilja vinna það? Það er ekkert annað en vinnuþrælkun og gróft fjárhagslegt ofbeldi af verstu gerð. Síðan verður fatlað fólk fyrir legnámi, hreppaflutningum, landflutningum landanna á milli, aftur til baka og aftur út og nú á að skilja fatlaðan einstakling í hjólastól frá fjölskyldu sinni, hann á að fá að vera heima en fjölskyldan á að fara út. Hvernig getum við hagað okkur svona? (Forseti hringir.) Ætlum við virkilega eftir 50 ár, þegar farið verður að rannsaka hvernig við högum okkur í dag, að verða dæmd fyrir það að hafa gengið á rétt fatlaðra og þurfa að borga sanngirnisbætur? Ég trúi því ekki.