154. löggjafarþing — 39. fundur,  28. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[13:44]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Forseti. Það er mikilvægt að við sem þjóð séum ekki of stolt til að biðja um aðstoð þegar þess gerist þörf. Fyrir rétt rúmum tveimur vikum gengu skelfilegar hamfarir yfir Grindavík og þó svo að hægst hafi um þar þá getur ástandið enn brugðið til beggja vona. Í morgun var svo lýst yfir hættuástandi í Vestmannaeyjum af því að eina vatnsleiðslan frá meginlandinu er skemmd á stórum hluta og óvíst hvort hún haldi í allan vetur. Viðbragðskerfi okkar er ótrúlega öflugt miðað við þann mannfjölda sem hér býr en það, rétt eins og í flestum öðrum löndum, hefur sín þolmörk. Þegar stóráföll gerast sem viðbragðskerfi landa ráða ekki við að öllu leyti þá er mikilvægt að þjóðarstoltið komi ekki í veg fyrir það að óskað sé aðstoðar erlendis frá. Jafnvel stór lönd eins og Bandaríkin og Kína hafa kyngt sínu þjóðarstolti og óskað eftir aðstoð eftir stórfelldar náttúruhamfarir. Fyrir rúmri viku síðan sýndum við Íslendingar að við erum ekki of stolt til að biðja um aðstoð þegar á reynir. Almannavarnir óskuðu eftir því að teymi frá almannavarnasamstarfi Evrópu kæmi hingað til lands til að gefa ráð varðandi hamfarirnar í Grindavík og skoða hvort sá búnaður sem til er í Evrópu til að takast á við flóð gæti nýst ef reynt yrði að nota vatn til að styrkja varnargarða og hafa áhrif á stefnu mögulegs hraunstraums ef til eldgoss kæmi á svæðinu við Grindavík eða Svartsengi. Ráðleggingar þessa teymis munu nýtast viðbragðsaðilum hér til þess að skipuleggja fyrirbyggjandi aðgerðir enn betur og einnig gefa okkur Íslendingum betri skilning á því hvaða aðstoð við gætum fengið ef ástandið versnar. Hið fornkveðna, ber er hver að baki nema sér bróður eigi, á nefnilega vel við í dag og þá sérstaklega þegar stóráföll eins og náttúruhamfarir dynja yfir.