154. löggjafarþing — 39. fundur,  28. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[13:47]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans var 22. nóvember síðastliðinn. Þar var stýrivöxtum haldið óbreyttum, 9,25%. Ástæður voru jarðhræringarnar á Reykjanesi. En verðbólguhorfur hafa versnað, spennan í þjóðarbúinu virðist vera meiri en áður og gengi krónunnar hefur lækkað. Verðbólguvæntingar haldast áfram háar og kostnaðarhækkanir virðast meiri og langvinnari en búist var við. Í október hækkuðu dagvörur um 11,15%, innlendar vörur um 10,8%. Hægari hjöðnun verðbólgu kallar á hærri vexti og harðari peningastefnu á næsta ári og á árinu 2025 samkvæmt aðalhagfræðingi Seðlabanka Íslands. Þetta eru ekki góðar fréttir, við erum sem sagt komin í þráláta verðbólgu, 7,9%. Ástæðan fyrir þessari verðbólgu er gríðarlegur hagvaxtarkraftur sem drifinn er áfram af ferðaþjónustunni. Í dag búa 74.000 erlendir ríkisborgarar á Íslandi, eru 18% af heildaríbúafjölda landsins og þeim fer fjölgandi og er útlit fyrir að þeim haldi áfram að fjölga á næsta ári. Við erum sem sagt áfram í þensluverðbólgu á næsta ári og jafnvel árið 2025, með 9,25% vexti.

Hvað gerir ríkisstjórnin? Ekki neitt. Hún er alger áhorfandi að þessu sjónarspili sem við erum að horfa upp á og mun bitna á húsnæðislántakendum í samfélaginu sem munu sennilega þurfa að selja húsnæðið sitt. Það er ekkert verið að gera til að taka á verðbólgunni. Jú, það kemur gistináttaskattur upp á 300 kr. á nótt á fimm stjörnu hótel og líka 300 kr. á tjaldstæði í landinu. Má taka sem dæmi að ferðaþjónustan er með lægra virðisaukaskattsstig en aðrar atvinnugreinar í landinu. Þetta sýnir það að við erum ekki að horfa fram á bjartari tíma í efnahagsmálum þjóðarinnar. Það sjáum við líka í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar fyrir 2. umræðu fjárlaga og í aðgerðum ríkisstjórnarinnar í fjárlögum.