154. löggjafarþing — 39. fundur,  28. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[13:49]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Á morgun er merkisdagur. Þann 29. nóvember verða liðin 12 ár frá samþykkt þingsályktunartillögu Alþingis um viðurkenningu á sjálfstæði Palestínuríkis í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Þarna steig smáríkið Ísland stórhuga skref í að beita sér fyrir friðsamlegum lausnum á djúpstæðum óróa sem ríkt hefur á svæðinu í manna minnum. Íbúar Palestínu hafa hins vegar búið við þann veruleika í áratugi að vera annars flokks þegnar í eigin landi og hörmungarnar sem nú dynja á almennum borgurum landsins, og þá helst börnum, eiga sér rót sem rekur sig mun lengra aftur en til 7. október sl. Við stöndum í miðju stormsins í árásum sem bera allar merki stríðsglæpa. Fyrrum ráðherrar Ísraelsríkis hafa nú talað fyrir því í fjölmiðlum að jafna verði Gaza við jörðu, hreinsa öll ummerki um að þar hafi verið byggð sem nú stendur og flytja eftirlifendur á brott til annarra landa. Ýmsir telja alþjóðasamfélagið hafa brugðist Ísrael í þeim hörmungum sem dynja á íbúum svæða landanna tveggja.

Forseti. Alþjóðasamfélagið hefur brugðist Palestínumönnum í áratugi. Við látum ekki telja okkur trú um að rétt sé að svipta heila þjóð borgaralegum og stjórnmálalegum mannréttindum sínum og það tekur sárt þegar vinaríki okkar samsama þessa aðila, þessi börn, með öfgahreyfingunni Hamas. Þetta hentar aðeins gerendum ríkisstjórnar Benjamins Netanyahus, sem ber nú ábyrgð á dauða hartnær 7.000 barna frá upphafi október.

Virðulegi forseti. Ísland á ekki herstyrk en við eigum rödd á alþjóðavettvangi og hana eigum við að nýta. Við eigum hjarta, við eigum samkennd, við eigum samvisku og höfum alla burði til þess að taka stórhuga skref í þágu varanlegs friðar á svæðinu. Ég kýs að gera orð Olofs Palmes, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar og þess merka jafnaðarmanns, að mínum, með leyfi forseta: Það er ekki hægt að endurbæta aðskilnaðarstefnuna. Það verður að útrýma henni.