Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Gríðarlegu læknaskortur er hér á landi. Í ár útskrifast 51 læknir frá Háskóla Íslands og 30 íslenskir læknar frá erlendum skólum. Samanlagt gerir þetta 81 lækni sem er þó langt undir því marki sem þarf til að vinna á læknaskorti hér á landi. Það er alveg ljóst að íslenska ríkið nær ekki að standa undir nægri fjölgun lækna. Stefnan hefur þó verið tekin á að fjölga læknanemum úr 60 í 75 en sú lausn leysir engan veginn þann læknaskorts sem við búum við. Hvaða úrræði höfum við þá fyrir hendi? Jú, við höfum önnur ungmenni hér á landi sem geta og hafa farið erlendis í læknanám og borga allt sitt læknanám úr eigin vasa. Ríkið kemur ekkert að þeim kostnaði en hefur hingað til boðið þeim aðgang að klínísku verknámi hér á landi. Nú virðast þau afgangsstærð og fá ekki sama aðgang og áður að klínísku námi hér á landi. Með leyfi forseta langar mig að vitna orðrétt upp úr formlegu bréfi til þeirra:
Þakka þér fyrir umsóknina um verknám á Landspítala á vorönn 2024. Landspítali er háskólasjúkrahús og er samningsbundinn Háskóla Íslands um að veita nemendum hans verklega kennslu. Því eru læknanemar við Háskóla Íslands í forgangi þegar kemur að námsplássum við spítalann. Vegna fjölgunar læknanema í HÍ og takmarkaðra nemaplássa er því miður ekki hægt að bjóða læknanemum í námi erlendis að vera á sama tíma í verknámi og nemar í HÍ.
Læknanemunum er þó bent á tvær vikur um páskana, en einnig bent á að almennir frídagar séu á þeim tíma og ekki hægt að tryggja kennslu á þeim dögum, mögulega viku frá 22. apríl til maí, og að á sumrin sé engin formleg kennsla í boði og misjafnt hvort deildirnar séu í stakk búnar til að sinna verknámi vegna sumarleyfis starfsfólks.
Eðlilega eru HÍ nemar í forgangi en ljóst er að stokka verður verknámið upp frá grunni. Íslenskir læknanemar erlendis eru mikilvægur hluti af framtíð íslenska heilbrigðiskerfisins. Við erum mjög háð því að þeir kjósi að fara erlendis í nám og að þeir skili sér heim. Þeir bera einir allan kostnað af náminu og kosta því íslenska ríkið ekki neitt. (Forseti hringir.) Þeir hljóta að eiga það inni að fá þó (Forseti hringir.) tryggan aðgang að klínísku verknámi hér á landi. Það er það minnsta sem við getum gert.