Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Íslenskt grænmeti er iðulega merkt svo ekki sé um villst að það óx í íslenskri storð. Auk þess tel ég almenning átta sig á hvað vex hér á landi og hvað ekki, t.d. að við vitum að appelsínur og epli og Ora-baunir eru innfluttar vörur. Mörkin í kjötvöru eru óljósari. Við framleiðum hér á landi lamb og naut, kjúklinga og svín og jafnvel kalkún. En kalkúnn í sneiðum, framleiddur úr fyrsta flokks íslensku grísakjöti, upprunaland Pólland, með íslensku fánaröndina hliðarsetta á pakkningunni? Þetta bar fyrir augu neytenda nokkurs í matvöruverslun hér á landi fyrir skemmstu og rataði myndin á veraldarvefinn. Hér hefur augljóslega eitthvað misfarist í prentun merkimiðans og atvikið að einhverju leyti spaugilegt, en merkingar eru alvörumál.
Ég hef áður fjallað um neytendamál bæði í ræðu og riti og er þeirrar skoðunar að notkun fánalita íslenska fánans við merkingar á erlendum afurðum sem pakkað er af innlendum framleiðendum ætti að vera með öllu óheimil. Það er of algengt að framleiðendur freistist til þess að nota fánalitina með þeim hætti til að selja vöru sína. Það er hluti af heilnæmi íslenskra matvæla að eftirlit með framleiðslu og hreinleika afurða sé í fyrirrúmi. Það er engum til góðs að neytendur þurfi að lúslesa pakkningar til að sjá hvar varan er framleidd, sér í lagi ef á henni er íslenskur fáni. Við viljum geta treyst því að fáninn okkar hafi einhverja merkingu en sé ekki eitthvert ódýrt sölutrix. Á vefnum Íslenskt staðfest er að finna tölur úr könnun Gallup fyrir Icelandic Lamb frá 2021. Þar kemur fram að 90% svarenda töldu upprunamerkingar mikilvægar, 70% sögðust óánægð með að erlendar kjötafurðir væru seldar undir íslenskum vörumerkjum, 63% vildu að innlendar matvörur væru upprunamerktar og ríflega 80% kjósa íslenskar vörur í verslunum sé þess kostur. Bændasamtökin hafa svarað þessu kalli og reka merkið Íslenskt staðfest sem byggir á áratugareynslu af notkun sambærilegrar merkja á Norðurlöndunum. Eftir sem áður kemur það góða starf ekki í veg fyrir misvísandi merkingar, þó að það sannarlega auðveldi neytendum að versla innlenda matvöru. (Forseti hringir.)
Kæra fólk. Höfum augun opin þegar við verslum og styðjum íslenska framleiðslu og íslenska bændur.