154. löggjafarþing — 39. fundur,  28. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[14:04]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Mig langar við þetta tækifæri að segja nokkur orð um stöðu innviða hér á Íslandi. Í gær bárust af því fréttir að Landsvirkjun þyrfti að takmarka afhendingu orku, eins og segir í tilkynningu frá Landsvirkjun, með leyfi forseta:

„Landsvirkjun þarf að grípa til takmörkunar á víkjandi orku til fiskimjölsverksmiðja, fiskþurrkana og gagnavera sem stunda rafmyntagröft.“

Ég hef í sjálfu sér kannski ekki miklar áhyggjur af gagnaverunum en fiskimjölsverksmiðjurnar og fiskþurrkanirnar munu halda áfram sinni starfsemi. Það sem gerist er auðvitað það að þrátt fyrir að þessi fyrirtæki hafi fjárfest í rándýrum lausnum til að reka sína starfsemi með rafmagni hingað til þá verða þær reknar áfram með olíubruna og þurrka þar með út allan þann árangur sem náðst hefur með miklum tilfærslum vegna rafbílavæðingar landsins á undanförnum árum, bara til að setja í samhengi hversu mikil áhrifin eru af því að þessar verksmiðjur starfi á grundvelli olíubruna en ekki rafmagnsnotkunar.

Á sama tíma berast fréttir af alvarlegri stöðu í Vestmannaeyjum þar sem hættustigi hefur verið lýst yfir vegna skemmda á neysluvatnslögn. Það er ekki langt síðan ríkisstjórnin féllst á að koma að málum varðandi það að tryggja aukalögn til Eyja en ef ég man rétt er ekki fyrirhugað að það verði fyrr en árið 2025 sem slík lögn komi til framkvæmda og vinna við hana, þannig að ég bara hvet þá sem um þau mál höndla að líta hið snarasta til með þeirri alvarlegu stöðu sem uppi er í Vestmannaeyjum.

Svo við höldum síðan áfram með innviðina þá barst umsögn frá Náttúrufræðistofnun Íslands um matsáætlun framkvæmda við Sundabraut þar sem stofnunin lýsir furðu sinni á því að tímaáætlun matsferils geri ráð fyrir umhverfismatsskýrsla verði send til athugunar hjá Skipulagsstofnun snemma árs 2024. Þarna er eitt ríkisapparatið að gagnrýna framgöngu ríkisstjórnarinnar (Forseti hringir.) sem virðist í þessu máli, Sundabraut, eins og svo oft áður, hafa látið fulltrúa Reykjavíkurborgar plata sig (Forseti hringir.) og stendur núna frammi fyrir óraunhæfri tímaáætlun, því miður.