Vopnaburður lögreglu.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur og hæstv. ráðherra fyrir þessa umræðu og þau svör sem hér hafa borist. Samfélagið hefur breyst og það breytist hratt. Við hér á Íslandi höfum nú lengi búið við ákveðna menningu sem við þekkjum og er þannig að við höfum mikla skotvopnaeign meðal almennings. Mörg eru alin upp við það að kynnast skotvopnum og umgangast þau í tengslum við bara sjálfbæran lífsstíl og veiðar, en það er allt annað sem við erum að horfa á í dag. Við erum að horfa á, ég man ekki töluna, hvort það voru ákveðnir einstaklingar sem eiga tugi eða hundruð hálfsjálfvirkra vopna sem hafa ekkert með veiðar að gera. Ég hef litið svo á að hæstv. ráðherra sé á góðri leið með breytingu á vopnalögum og hvet hana til dáða og að halda áfram á sömu leið.
Hvað varðar vopnvæðingu lögreglu þá sjáum við öll, eins og ég byrjaði mál mitt á, hversu staðan er breytt, hversu umhverfi lögreglumanna er breytt, en að vopnavæða lögregluna tel ég vera að byrja algerlega á öfugum enda. Við verðum að horfast í augu við það að lögreglan er vanfjármögnuð, lögreglumenn eru of fáir, það er of mikið álag á þeim. Það er misjafnt eftir landsvæðum hvernig staðan er en víða er hún mjög bág. Það að fara inn í starfsstétt þar sem við bjóðum upp á slíkar starfsaðstæður og ætla að leysa einhvern veginn úr málum með því að vopnavæða er ekki góð hugmynd. (Forseti hringir.) Það sem ég hvet hæstv. ráðherra til að gera er að halda áfram að standa vörð um lögregluna og tryggja þær starfsaðstæður (Forseti hringir.) sem lögreglan býr við. Það felur í sér meira öryggi en rafbyssa.