Vopnaburður lögreglu.
Forseti. Ég þakka fyrir. Vopnavæðing lögreglu vegna skipulagðrar glæpastarfsemi og ýmiss konar breytinga sem hafa orðið á samfélaginu á undanförnum árum er einfaldlega falskt öryggi. Aukin vopnavæðing leiðir til vopnakapphlaups. Þetta er mjög vel skjalfest í fjöldamörgum rannsóknum úti um allan heim. Meiri vopnavæðing lögreglu þýðir vissulega kannski ákveðið öryggi í einstaka tilvikum eins og hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson kom hérna fram með áðan en það fjölgar þeim tilfellum, þau verða fleiri. Líkurnar á óhöppum tengdum notkun á vopnum aukast einfaldlega af því að tilfellin eru fleiri.
Mér finnst áhugavert að heyra hæstv. ráðherra tala um að hérna sé engin stefnubreyting sem hefur verið gerð þegar það var sérstaklega verið að bæta við úrræði fyrir lögregluna, sem sagt rafbyssu — ekki rafvarnarvopn, afsakið, þetta er stytting eða upprunalega orðið yfir þetta er TASER, með leyfi forseta, sem er skammstöfun fyrir „Thomas A. Swift's electric rifle“, eða Thomas A. Swift rafriffill. Síðan þá hefur þetta orðið aðeins minna og er orðið rafbyssa og það er dálítið leiðinlegt að stjórnvöld séu einhvern veginn að fara að reyna að búa einhvern dulbúning á þetta vopn, að kalla það rafvarnarvopn eins og það sé eitthvað betra. Mér finnst þetta leiðinleg nýlenska, mér finnst þetta leiðinleg pólitík. Mér finnst það óþægilegt þegar það er ekki hægt að tala um rannsóknirnar sem liggja hérna á bak við, í t.d. Bretlandi, í Noregi og Svíþjóð og í Kanada þar sem var farið í innleiðingu og sérstaklega í Bretlandi, það var sýnt fram á aukið ofbeldi í kjölfar innleiðingar á rafbyssu. Við skulum taka þetta betur, gera þetta betur, ekki nota ódýrar lausnir til að búa til falskt öryggi heldur förum í þær aðgerðir sem tvímælalaust hafa verið lagðar fram um öryggi lögreglu (Forseti hringir.) með því að manna lögregluna, með því að fjármagna lögregluna almennilega.