Vopnaburður lögreglu.
Frú forseti. Þegar fyrrverandi hæstv. dómsmálaráðherra gerði reglugerðarbreytingu 30. desember síðastliðinn var augljóst af viðbrögðum hæstv. forsætisráðherra að ekki var eining um málið í ríkisstjórninni og mér heyrist sú óeining enn vera uppi meðal stjórnarflokkanna. Svo má líka rifja það upp að umboðsmaður Alþingis gerði athugasemdir við samráðsleysi við þessa ákvörðun. En gott og vel. Ráðherrann þáverandi hafði tekið þessa ákvörðun að vandlega íhuguðu máli, var sagt í fréttum, og eftir samráð við ríkislögreglustjórann. Við þetta er tvennt að athuga: Í fyrsta lagi þurfum við að spyrja okkur í þessum sal hvort það sé eðlilegt og skynsamlegt fyrir lög og reglur í landinu að ráðherra hafi vald til að breyta þessu með reglugerð og ekki þurfi að bera það undir hið háa Alþingi. (Gripið fram í: Þetta var ekki reglugerð.) Var samráðið sem ráðuneytið hafði í aðdraganda breytinganna nægilegt? Stuðlaði það að góðri niðurstöðu? Í fyrsta lagi má færa gild rök fyrir því að slíkar breytingar krefjist náins samráðs við þing og þjóð. Rétta leiðin til þess er að leggja málið hér inn til Alþingis til umræðu og afgreiðslu. Í annan stað hefði mér þótt betra og kannski einhverjum fleirum að það hefði verið ráðist í tilraunaverkefni og þess vegna gladdi það mig að núverandi hæstv. dómsmálaráðherra hafi sagt hér áðan að eftir 18 mánuði eigi að endurmeta stöðuna. Þá má kannski með góðum vilja nefna það 18 mánaða tilraunaskeið og síðan verði árangurinn metinn og mældur. Við skulum líka vona að það verði gert almennilega og af utanaðkomandi aðilum. Höfum það hugfast að rafvopn hafa áhrif á skyntauga- og hreyfitaugakerfi mannslíkamans. Þau valda skyndilömun og það eru mörg dæmi um það og margar rannsóknir sem sýna að þau geta stórslasað fólk og það eru meiri líkur á því (Forseti hringir.) að þau séu notuð gegn veikum einstaklingum en fullheilbrigðum. Höfum það í huga.