154. löggjafarþing — 39. fundur,  28. nóv. 2023.

Vopnaburður lögreglu.

[14:43]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu, hún er mikilvæg. Ég lenti persónulega í því fyrir nokkrum misserum að fornbíl var rænt sem var mér og fjölskyldunni mjög kær og hann færður í úthverfi og allt hirt úr honum. Síðan var kært að hann væri ólöglega staðsettur og var hringt á Vöku og hann færður þangað niður í portið. Þegar ég kem þangað kemur maður skjálfandi á móti mér og segir: Ég er feginn að sjá þig, Jakob Frímann. Hér kom maður mjög óhuggulegur, ógnandi og reiður í morgun yfir því að við hefðum fjarlægt bílinn og hérna er nafnið hans. Ég vissi að þú ættir þennan bíl. Hér er nafn og kennitala en þú ferð ekki að tala við hann sjálfur, þetta er hættulegur maður. Nú hvað á ég að gera? Þú talar við lögregluna. Svo kemur löng þögn. Við megum ekkert segja. Þú ferð ekki að tala við þennan mann sjálfur, segir lögreglumaðurinn. Og hvað á ég að gera? Þú verður að leita þér lögmanns. Ég talaði við lögmann. Enginn lögmaður vildi taka þetta mál að sér.

Þetta er Ísland í dag, gott fólk, eins og Jón Ársæll myndi orða það. Við þurfum að bregðast mun harðar við þeirri staðreynd — nota bene, hér voru íslenskir krimmar á ferð — að hér eru komnar mafíur ýmissa landa, búnar að festa rætur í glæpastarfsemi af ýmsum toga. Við höfum því miður leyft þessu að gerast og viðgangast. Ég er ekki sérfræðingur í tegund vopna eða hvernig bregðast skuli við en með einhverjum markvissum og árangursríkum hætti þurfum við að berjast á móti þessu og bregðast við þessu hraðar og harðar en við höfum gert til þessa. Ég skora á dómsmálaráðherra að hika ekki við að losa okkur undan þessu ástandi vegna þess að það er tiltölulega nýtilkomið og við þurfum að grípa til skjótra aðgerða gegn því.