154. löggjafarþing — 39. fundur,  28. nóv. 2023.

Vopnaburður lögreglu.

[14:48]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni og málshefjanda, Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, og hæstv. dómsmálaráðherra fyrir þessa umræðu. Hún er mikilvæg, ekki síst í ljósi fréttaflutnings af auknum vopnaburði í samfélaginu og af því hefur lögreglan eðlilega áhyggjur og við hér sem höfum tekið til máls í þessari umræðu deilum þeim. Það er til marks um styrk samfélagsins og Íslands sem réttarríkis að það heyrir til algerra undantekninga að lögreglan þurfi að beita vopnavaldi. Það hefur hingað til ekki þótt ástæða til að almennir lögreglumenn beri á sér skotvopn við skyldustörf og til mikils að vinna fyrir samfélagið allt, að svo megi verða áfram. Í frumvarpi dómsmálaráðherra um breytingar á vopnalögum sem nú liggur fyrir þinginu er lagt upp með að taka á þessum vanda sem hefur farið vaxandi í samfélaginu, m.a. með því að taka fyrir að fleiri hálfsjálfvirk skotvopn og sjálfvirk skotvopn verði flutt til landsins á grundvelli þess að um safnvopn sé að ræða. Þetta atriði sem og önnur í frumvarpi hæstv. ráðherra eru til þess fallin að stemma stigu við auknum líkum á vopnaburði í samfélaginu og er það vel. Öflugt lögreglulið, þ.e. vel fjármögnuð löggæsla, er líka leið til að draga úr því að lögreglan þurfi að bera vopn við sín daglegu störf.

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur áður látið þá afstöðu sína í ljós að vopnaburður lögreglu skuli ekki vera almennur hér á landi og að slíkt beri að forðast í lengstu lög. Breytingar á vopnalögum eru því skref í því að ná tökum á vaxandi vanda. Ég treysti því að við leitum allra leiða til að komast hjá því að almennir lögreglumenn beri á sér skotvopn við skyldustörf.