Vopnaburður lögreglu.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra og öllum þeim sem hafa tekið þátt í umræðunni og henni er sannarlega ekki lokið. Ég vil taka undir með þeim sem hafa nefnt hér að það mætti alveg fara meira fyrir þessari umræðu hér á þessum vettvangi. Ég er sammála því að þetta eru pólitískar ákvarðanir sem við erum að taka, það hvort lögregla beri vopn er gríðarlega mikilvæg pólitísk ákvörðun sem þarf að taka að vandlega ígrunduðu máli í samráði við fleiri aðila heldur en þann aðila sem valdinu fær að beita. Það er eðlilegt að fólk sem hefur vald vilji meira vald og það hefur sýnt sig að það er í sjálfu sér eðlilegt og ætti ekki að duga til þess að það sé aukið.
Mig langar til að ítreka spurningu mína til hæstv. ráðherra sem mér fannst ekki vera svarað hér áðan, þ.e. aðallega það hvað eigi að gera við þessi vopn sem voru keypt fyrir hundruð milljóna fyrir leiðtogafundinn og hvort hæstv. ráðherra hafi ekki áhyggjur af stigmögnun vopnaburðar sem er nokkuð sem fræðimenn hafa lýst áhyggjum af í kjölfar umbyltingar á störfum lögreglu hér á landi. Þá langar mig örstutt að tæpa á því sem hefur komið fram í máli hv. þingmanna sem hér hafa tekið til máls, og þakka ég þeim aftur, en hv. þingmenn Guðmundur Ingi Kristinsson og Bergþór Ólason töluðu um það akkúrat að treysta þyrfti lögreglunni til að meta þetta. Í fyrsta lagi þá snýst sú ákvörðun, eins og ég sagði, hvort lögreglan eigi að vera vopnuð t.d. skotvopnum — það er eitthvað sem við erum öll sammála um. Það sem ég tala hér fyrir snýst um að tryggja öryggi lögreglumanna og tryggja öryggi almennings. Rannsóknir sýna það að vopnaburður lögreglumanna eykur ekki öryggi þeirra heldur getur sett öryggi þeirra í hættu í ofanálag. Þetta er byggt á rannsóknum. Það er mikilvægt að við tökum svona ákvarðanir að ígrunduðu máli og byggt á staðreyndum en ekki kannski okkar tilfinningu. (Forseti hringir.) Þá vil ég taka undir með hv. þm. Guðbrandi Einarssyni og hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur sem töluðu um fjölda lögreglumanna sem er alls ekki nægur. (Forseti hringir.)
Að lokum, forseti. Við erum sammála um markmiðið, (Forseti hringir.) okkur gengur öllum það sama til; að auka öryggi borgaranna og öryggi lögregluþjóna við störf sín.
Forseti. Ofbeldi verður aldrei útrýmt með meira ofbeldi.