154. löggjafarþing — 39. fundur,  28. nóv. 2023.

Markmið Íslands vegna COP28, munnleg skýrsla umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

[15:08]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Mig langar til að nýta þetta andsvar til að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann hafi brugðist við erindi sem mér skilst að honum hafi borist 16. nóvember síðastliðinn frá Náttúruverndarsamtökum Íslands, Ungum umhverfissinnum, Landvernd og Fuglavernd. Erindið varðar alþjóðlegan sáttmála um bann við frekari leit að jarðefnaeldsneyti og um það að frekari leit að olíu og gasi verði bönnuð með lögum. Þetta er kannski tiltölulega ný umræða í samhengi við aðildarríkjaþingið en krafan um það að olían og gasið séu skilin eftir þar sem það er fer auðvitað hækkandi og vaxandi, af því að við vitum að ef við ætlum að fasa út notkun jarðefnaeldsneytis þá verðum við líka að hætta að vinna það upp úr jörðinni og sjónum.

Mig langar til að nota þetta tækifæri til að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann hafi brugðist við þessu erindi eða hvort það hafi verið skoðað í ráðuneytinu að Ísland beiti sér á COP28 og taki undir þessa kröfu. Mér skilst að það sé mikið um það núna í aðdraganda þessa fundar að það sé verið að skrifa undir alls kyns viljayfirlýsingar. Þær eru góðar sem slíkar, en þessi krafa er eiginlega grundvallarkrafa þegar við erum komin fram á árið 2023 og erum enn langt, langt á eftir í glímunni við hlýnun jarðar.