Markmið Íslands vegna COP 28, munnleg skýrsla umhverfis,- orku- og loftslagsráðherra.
Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra talaði hér í lok andsvara sinna um jarðefnaeldsneyti. Það er vert að minna á það að um 90% eða 87% af orkunotkun Íslendinga er jarðefnaeldsneyti. Við seljum upprunavottorð til Evrópu og nýting okkar í staðinn er kol og kjarnorka, 29% kjarnorka og 57–58% kolefni þannig að það er okkar nýting á jarðefnaeldsneyti á pappírunum. Það væri ágætt að heyra álit hæstv. ráðherra á því þegar hann talar um þessi málefni hér. En mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um alþjóðasamgöngur og mikilvægi þess að ESB viðurkenni sérstöðu okkar í flugsamgöngum. Spurningin er þessi: Hefur Ísland fengið undanþágu frá nýjum Evrópureglum sem eiga að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í flugsamgöngum? Og er ekki öruggt að samkeppnisstaða íslenska flugsins, sem er stór atvinnugrein á Íslandi, m.a. á Norður-Atlantshafsleiðinni, sé tryggð gagnvart breskum og bandarískum flugfélögum? Er ekki klárt að það mun ekki þurfa að óttast um samkeppnisstöðu sína vegna þess að þeir í Brussel ætla að reyna að koma flugsamgöngum á lestarteina? Það er ekki hægt að gera varðandi flugsamgöngur okkar svo það liggi fyrir. Hver er staðan á þessu máli? Í þriðja lagi langar mig að spyrja hann um gæði þeirra gagna sem liggja til grundvallar um landnotkun og endurheimt vistkerfa og þær rannsóknir og upplýsingar sem liggja fyrir. Núna er mikið verið að tala um að við þurfum að fara í skógrækt og endurheimta vistkerfi. Liggja fyrir einhverjar tölur um það hversu mikið við getum tekið þátt í þessu á COP28 varðandi landnotkun? Er það raunhæft markmið Íslands að verða kolefnishlutlaust árið 2040? Við ætluðum nú að vera fíkniefnalaus árið 2000 og við vitum hvernig það fór. Er þetta ekki bara háleitt markmið sem verður síðan ekkert úr?