Markmið Íslands vegna COP 28, munnleg skýrsla umhverfis,- orku- og loftslagsráðherra.
Virðulegur forseti. Í svari sem loftslagsráðherra gaf við fyrirspurn frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur um markmið stjórnvalda um kolefnishlutleysi fyrir árið 2040 kemur fram að losun frá alþjóðaflugi og alþjóðasiglingum sé almennt haldið fyrir utan skuldbindingar einstakra ríkja og þetta er m.a. á vettvangi Alþjóðaflugmálastofnunarinnar og Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar, IMO. Það er klárt væntanlega varðandi COP-markmiðið að þessu er haldið fyrir utan, alþjóðaflugsamgöngurnar falla ekki undir markmiðið fyrir COP, svo það liggi fyrir. Það væri gott að heyra álit ráðherra á því. En ég get ekki annað en minnst á það sem kemur fram í svari hæstv. ráðherra, með leyfi forseta:
„Til að ná markmiði Parísarsamningsins þarf því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum eins hratt og nokkur kostur er með minni notkun jarðefnaeldsneytis í orkuframleiðslu og samgöngum og á sama tíma að auka kolefnisbindingu …“
Notkun okkar á jarðefnaeldsneyti liggur algjörlega fyrir með sölu upprunavottorða. (Forseti hringir.) Við erum að hjálpa Evrópusambandinu að menga með þessu og þar með að hjálpa þeim að auka gróðurhúsalofttegundir í heiminum. (Forseti hringir.) Það er það sem við erum að gera óbeint.