Markmið Íslands vegna COP 28, munnleg skýrsla umhverfis,- orku- og loftslagsráðherra.
Forseti. Ég var að spyrja hæstv. ráðherra af hverju það vantaði í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Þar sýnirðu á borði það sem þú segir í orði, það sem þú gerir. Fjármunirnir hafa ekki verið þar til staðar, voru það ekki á síðasta kjörtímabili og eru það ekki enn þá. Fjármálaáætlun er ekki uppfærð miðað við þau markmið sem ríkisstjórnin hefur sett sér. Ég skal alveg kaupa það að fyrstu fjármálaáætluninni eftir nýuppfærð markmið hafi verið pínulítið ábótavant en í annarri fjármálaáætlun hefði tvímælalaust átt að koma með einhverjar aðgerðir. Jú, kannski er að koma einhver aðgerðaáætlun um eða eftir áramótin og þá býst ég við að sjá hana fullfjármagnaða í þeirri fjármálaáætlun sem birtist í vor. Annað væri mjög óeðlilegt þannig að ég hlakka tvímælalaust til að sjá þetta en mér finnst dálítið seint í rassinn gripið, verð að segja það, því að hingað til hefur þetta ekki staðist. (Forseti hringir.) Hingað til hafa markmiðin ekki staðist. Hingað til hafa aðgerðirnar ekki verið fullfjármagnaðar. Ef ráðherra getur fullvissað okkur um (Forseti hringir.) að við fáum að sjá fullfjármögnunina þá væri ég mjög ánægður með það.