Markmið Íslands vegna COP 28, munnleg skýrsla umhverfis,- orku- og loftslagsráðherra.
Frú forseti. Ég vil gera málefni hafsins að umtalsefni. Það er mikilvægt á COP28 verði málefni hafsins þátttakendum ofarlega í huga. Markmið loftslagsráðstefnunnar í París 2015 voru skýr um að halda hlýnun af manna völdum innan við 1,5°C miðað við árdaga iðnbyltingar. Of lítið var þar fjallað um hafið. Athyglin hefur færst á hafið síðan þá, sem betur fer. Stærsti hluti af auknum hita á jarðríki er geymdur í hafinu. Hafið hefur aldrei verið heitara en árin 2022 og 2023 frá því að mælingar hófust. Verndun hafsins er alþjóðlegt úrlausnarefni og á þeim vettvangi verður Ísland að tala skýrt fyrir þeim málstað. Ísland á að vera í fremstu röð í þessum efnum. Við eigum svo mikið undir. Á þeim árum sem liðin eru síðan hafréttarsamningur Sameinuðu þjóðanna var gerður hafa bæst við nýjar og miklar áskoranir í umhverfismálum. Áherslan hefur færst frá því að vera nær eingöngu á veiðar yfir í umhverfisþætti sem varða hafið, svo sem hlýnun loftslags, líffræðilegan fjölbreytileika og viðkvæmar vistgerðir í hafinu auk eiginlegra fiskveiða og eldis.
Árið 1982 voru loftslagsbreytingar nánast óþekkt hugtak og einungis ríflega áratugur er frá því að súrnun sjávar varð þekkt. Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um verndun líffræðilegs fjölbreytileika var undirritaður í Rio de Janeiro árið 1992 og tók gildi hér árið 1994. Samningurinn er mikilvægasta verkfærið til að varðveita líffræðilega fjölbreytni jarðar og náið samstarf og samráð er um framkvæmd hans og annarra alþjóðlegra náttúruverndarsamninga. Samningurinn hefur í för með sér viðamiklar alþjóðlegar skuldbindingar fyrir Ísland sem m.a. lúta að verndun og sjálfbærri nýtingu lífríkisins auk ákvæða um sanngjarna skiptingu hagnaðar af nýtingu erfðaauðlinda. Ráðstefnan um líffræðilegan fjölbreytileika sem kennd er við Montreal og Kunming, sem haldin var í fyrra, setur skýr markmið um að varðveita líffræðilegan fjölbreytileika og að verndarsvæði verði 30% af hafi og landi fyrir árið 2030. Einnig voru samþykkt markmið um endurheimt vistkerfa. Því þarf að vinna að því að skilgreina áherslur Íslands varðandi verndun hafsvæða innan íslenskrar lögsögu í samræmi við markmið alþjóðasamninga sem Ísland er aðili að. Það þarf að nýta þá grunnþekkingu sem til staðar er, benda á hvar eru brotalamir og skortur á rannsóknum og tryggja að brugðist verði hratt og vel við.
Mikilvægt er að Ísland beiti sér fyrir því á vettvangi Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar að bruni svartolíu sem eldsneytis fyrir skip og flutningur olíu á norðurslóðum verði bannaður líkt og stofnunin hefur samþykkt við suðurheimskautið, þ.e. sunnan 66. breiddargráðu. Enn fremur verði bannað að flytja svartolíu um norðurslóðir, svæðið norðan við 66. breiddargráðu, en bannið taki líka til efnahagslögsögu Íslands. Svartolía er gríðarlega eitrað og seigfljótandi skipaeldsneyti sem brotnar afar hægt niður í lífríki sjávar og alveg sérstaklega á kaldari slóðum í Norðurhöfum. Verði skipsskaði eða sjóslys gæti það orsakað óbætanlegan skaða á fiskimiðum okkar enda er nánast vonlaust að hreinsa svartolíu í hafinu.
Áhrif loftslagsbreytinga á hafið komust fyrst formlega á dagskrá á aðildarríkjafundi loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna árið 2017. Það er nauðsynlegt, frú forseti, og löngu tímabært að móta stefnu Íslands um málefni hafsins.