Markmið Íslands vegna COP 28, munnleg skýrsla umhverfis,- orku- og loftslagsráðherra.
Virðulegi forseti. Bráðum hefst fundur aðildarríkja loftslagssamstarfssamnings Sameinuðu þjóðanna, sem er einmitt tilefni umræðunnar hér í dag. Þar á að ræða hvernig heimurinn geti náð þeim markmiðum að takmarka hækkun meðalhitastigs andrúmslofts jarðar við 1,5°C miðað við hitastig fyrir iðnvæðingu. Það verður hnattræn stöðutaka eins og hæstv. ráðherra kom inn á áðan.
Hér á Íslandi má segja að við höfum góða sögu að segja og þó svo að enginn sé fullkominn þá má segja að Ísland sé til fyrirmyndar í baráttu fyrir umhverfinu. Notkun okkar á hreinni orku sætir aðdáun alheimssamfélagsins og við erum vel í stakk búin að uppfylla þau skilyrði sem við höfum sett okkur. Ísland getur verið fyrirmynd í umræðunni og margar þjóðir hafa einmitt leitað til okkar þegar kemur að þessum málum, þegar kemur að aðgerðum í þágu umhverfismála þar sem við sýnum öðrum skrefin. En þó svo að við eigum langt í land við að fullnýta þá orkukosti sem við eigum og dreifingu orkunnar þá megum við ekki gleyma að hér á landi erum við í öfundsverðri stöðu til að ná einmitt þessum markmiðum. Sú staða er þó ekki sjálfgefin. Það hefur ítrekað verið bent á yfirvofandi orkuskort hér á landi þar sem aðilar hafa neyðst til að brenna olíu til að halda daglegum rekstri gangandi. Bara í gær fengum við tilkynningu frá Landsvirkjun þess efnis að grípa þurfi til takmörkunar á víkjandi orku til fiskimjölsverksmiðja, fiskþurrkunar og gagnavera sem stunda rafmyntagröft. Það er hins vegar mikilvægt að hafa samninga hvað varðar ótrygga orku og afhendingu á henni til þess að fullnýta kerfið okkar en skerðingarnar eru hins vegar að aukast og vara yfir í lengri tíma. Eftirspurn allra hefur aukist talsvert, hvort sem við lítum hérlendis eða erlendis og hvort sem um er að ræða stórnotendur, heimilin eða annan atvinnurekstur. Magn raforku hér á landi getur takmarkast við vatnsmagn í lónum, þurrkatíð hefur áhrif og m.a. líka yfirfylling. Í núverandi stöðu er almenna svarið að bíða og vonast eftir góðri tíð og það má svo sannarlega segja að það sé ekki vænlegt til árangurs að treysta á íslenska veðurfarið.
Að þessu sögðu þá er samt brýnt að ákveða með hvaða hætti við ætlum að ná þeim markmiðum sem við höfum sett okkur. Ætlum við að leita ólíkra leiða? Hvernig ætlum við að nýta auðlindirnar okkar? Ætlum við að virkja meira? Ætlum við að minnka sóun í kerfinu og með hvaða hætti ætlum við að byggja upp byggðalínuna okkar og dreifikerfi? Eða ætlum við hreinlega að halla okkur aftur og horfa upp á gríðarlega afturför í loftslagsmálum hér á landi? Leiðin áfram ætti að vera skýr og það er eiginlega óskiljanlegt að við séum ekki öll hreinlega á harðahlaupum. Við verðum ekki kolefnishlutlaus án þess að grípa til aðgerða og því var afar ánægjulegt að heyra hæstv. ráðherra hér áðan fara aðeins yfir vænlegu aðgerðaáætlunina. Ríkisstjórnin hefur sett sér háleit og mikilvæg markmið. Við ætlum að verða kolefnishlutlaus árið 2040 í samræmi við stefnumið Parísarsamningsins. Þá er líka mikilvægt að hafa það í huga að umhverfismál varða okkur öll, allt heimssamfélagið eins og það leggur sig, enda er það heildarmyndin sem skiptir máli þó svo við séum afar oft að einblína eingöngu á landið okkar. Til að mynda getur stríð í heiminum haft áhrif á dreifingu orkunnar og nýtingu hennar og fengið þjóðir til að hugsa þetta í rauninni allt upp á nýtt. Þar er Ísland í rauninni engin undantekning, við reiðum okkur á heildarmyndina eins og allar aðrar þjóðir. Því er mikilvægt að öll ríki heims standi saman að aðgerðum í góðri trú og COP-fundirnir eru gríðarlega mikilvægir í því samhengi þar sem ríkin sameinast um ákvarðanir og aðgerðir og vinna þetta mikilvæga verkefni saman. Það er öllum ljóst að samvinna er lykillinn að betra samfélagi og betri heimi.
Í vinnu sem þessari er mikilvægt að við sinnum hagsmunagæslu einnig fyrir Ísland og Íslendinga. Hvað þýðingu hafa ákvarðanir sem eru teknar hér hvað varðar innleiðingu á reglugerðum og fleiri málum hér á landi þar sem við erum að hugsa um sérstöðu Íslands? Við eigum að beita okkur fyrir því að vinnan sé með þeim hætti að tekið sé tillit til þjóða sem hafa sérstöðu eins og Ísland sem er eyja og treystir talsvert á flugsamgöngur á mörgum sviðum. Harðar aðgerðir á sviði flugsins sem tengir okkur við umheiminn geta reynst okkur afar þungt högg. Því er mikilvægt að við séum að vakta þær tillögur sem fram koma og breytingar á þeim með áhrif þeirra á hagsmuni okkar að leiðarljósi og ég treysti því að fulltrúar Íslands séu að sinna því verkefni og maður finnur það alveg að þeir eru að gera það. En það er afar mikilvægt að allir komi að þessari hagsmunagæslu saman. Ávallt höfum við loftslagsmarkmiðin okkar ofarlega í huga að sjálfsögðu, en hins vegar getum við hæglega náð saman um tillögur sem koma ekki til með að hafa neikvæð áhrif á hagsmuni samfélagsins okkar og atvinnulíf. Til þess þurfa okkar fulltrúar að flagga sérstöðu Íslands í alheimsvinnu sem þessari.
Einnig er vert að hafa í huga að ómögulegt verður að ná markmiðum loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna og viðbóta við hann án traustrar samvinnu stjórnvalda og einkaaðila. Fyrirtæki hér á landi hafa gengið í aðgerðir með það að markmiði að lágmarka sóun, minnka útblástur og hraða orkuskiptum. Þau eiga lof skilið fyrir góða vinnu og þakklæti í þágu umhverfismála og við viljum halda þeirri skilvirku vinnu áfram, sem er afar mikilvægt, því það er nauðsynlegt að við gerum það einmitt með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi.