154. löggjafarþing — 39. fundur,  28. nóv. 2023.

Markmið Íslands vegna COP 28, munnleg skýrsla umhverfis,- orku- og loftslagsráðherra.

[16:14]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir að flytja þessa munnlegu skýrslu hér í dag í aðdraganda COP28 eins og við köllum það og sem hv. formaður Miðflokksins kallar 28. lokatilraunina. Ég vona að sá ágæti þingmaður geri sér grein fyrir því að samningurinn mun halda fullu gildi í mörg ár og áratugi væntanlega til viðbótar þannig að það verða miklu fleiri fundir en þessir 28 um loftslagssamninginn. Þetta eru vissulega risavaxinn viðburður og virðist alltaf verða stærri og stærri með hverju árinu sem líður og nú er hann haldinn í olíuríkinu Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Ég tek undir með hæstv. ráðherra um að skilaboðin frá Íslandi séu mikilvæg og skilaboðin frá fundinum séu mikilvæg og hvað varðar þessa svokölluðu fyrstu stöðutöku, loftslagshamfarasjóðinn, svokallaðan vinnustraum um samdrátt í losun og 6. gr. Parísarsamningsins sem hér hafa öll verið nefnd sem aðalatriði á borði samninganefndar Íslands og geri ég engar athugasemdir við það, þetta eru allt mjög mikilvæg mál. Það skiptir hins vegar líka mjög miklu máli að við höfum skýra mynd um það hvernig við ætlum að fara áfram og því hefði ég gjarnan viljað heyra hver í rauninni uppfærsla landsframlagsins okkar sé. Ef ég skildi hæstv. ráðherra rétt þá liggur hún enn ekki fyrir og það veldur mér nokkrum áhyggjum af því að við vitum að stóra verkefnið er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Það er samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda og hann þarf að verða alveg burt séð frá aukinni raforkuframleiðslu.

Það er svo ofsalega mikilvægt að hv. þingmenn geri sér grein fyrir því að hvort tveggja þarf að gerast og ég verð að viðurkenna það eftir að hafa hlustað á flestar ræður hér í dag að ég varð fyrir vonbrigðum með það hvað það er grunnt á skilningsleysinu á því hvað þarf að gera. Við þurfum að hafa aðgerðaáætlun um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda sem stendur meðan við erum líka að afla orku í græna atvinnustarfsemi og orkuskipti. Þetta tvennt verður að geta farið saman. Ég vil líka segja hér að ég vona að hv. þingmenn og þingheimur hafi augun á raforkuörygginu og forgangsröðuninni sem þarf að vera í kerfinu til að koma í veg fyrir ástand eins og skömmtun eða olíudrifna orkuframleiðslu eins og við höfum séð undanfarna vetur.

Því miður hef ég ekki meiri tíma, frú forseti. Það væri hægt að halda hér langa ræðu um mörg atriði en í öllum bænum kynnum okkar kerfið um upprunaábyrgðirnar áður en við byrjum að ræða það í ræðustól Alþingis.