154. löggjafarþing — 39. fundur,  28. nóv. 2023.

Markmið Íslands vegna COP 28, munnleg skýrsla umhverfis,- orku- og loftslagsráðherra.

[16:23]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða markmið Íslands eða árangur Íslands í loftslagsmálum, COP28, og það sem segir í loftslagsstefnunni eða rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um að draga beri úr losun gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum. Ég verð bara að segja alveg eins og er að við Íslendingar erum algjörir hræsnarar í þessum málum. Við erum okkur til háborinnar skammar stundum. Við þykjumst vera umhverfisvæn þegar við erum langt frá því að vera nálægt því á nokkurn hátt. Ég get tekið sem dæmi að höfum dælt niður koltvísýringi uppi á Hellisheiði frá held ég 2014, 1.000 tonnum á mánuði, 12.000 tonnum á ári — nokkrir klukkutímar af gosi á Reykjanesi og það er farið (Gripið fram í: Og hvað?) En hvað ætlum við að gera? Jú, það var kvartað undan jarðskjálftum út af þessu. Hvað dettur þeim þá í hug? Jú, þá ætlum við að fara að bora fullt af holum í Straumsvík, á Reykjanesi og í Krýsuvík, þar sem er eldvirkt svæði. Hvað ætlum við að gera þar? Jú, við ætlum hreinlega að dæla niður þegar mest verður 3 milljónum tonna af koltvísýringi. Og hvað á þetta á að kosta? Tökum þetta bara í réttri röð: Carbfix, sem hefur frá árinu 2012 fangað meira en 70.000 tonn af kolvetni í Hellisheiðarvirkjun, og Orka náttúrunnar ætla nú að fara í að farga 3 milljónum tonna af koltvísýringi á ári með Carbfix-tækninni sem felst í að blanda honum við vatn og dæla þessu niður í basaltjarðlögin. Við ætlum sem sagt að flytja mengun frá Evrópu, blanda hana með okkar hreina vatni, dæla því niður í fullt af holum á Reykjanesi, á eldvirku svæði, og það besta af þessu öllu; við hliðina á vatnsbóli á Reykjanesinu við Hafnarfjörð. Ég spyr bara: Fær þetta ekki gullverðlaun í heimsku? Það sem meira er þá ætla þeir að taka fullt af skipum frá Evrópu, sigla hingað skipi með koltvísýringi á sama tíma og við erum að sigla með annað skip fullt af rusli til að brenna í Evrópu — og þeir vinka hvor öðrum þarna á leiðinni. En það sem er furðulegast við þetta er að áætlaður kostnaður er 15–30 milljarðar, og hverjum haldið þið að verði sendur reikningurinn? Almenningi auðvitað. Á sama tíma erum við líka að selja mengunarkvóta út í heim, og hverjir borga þann mengunarkvóta? Almenningur. Ég held við ættum að fara að taka betur til í okkar málum varðandi það hvernig við erum að taka á loftslagsmálum en ekki blekkja almenning áfram.