154. löggjafarþing — 39. fundur,  28. nóv. 2023.

Markmið Íslands vegna COP 28, munnleg skýrsla umhverfis,- orku- og loftslagsráðherra.

[16:31]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir innleggin. Ég ætla að reyna að leiðrétta það helsta sem hér kemur fram. Varðandi hv. þm. Guðmund Inga Kristinsson og hv. þm. Eyjólf Ármannsson þá eru þeir algjörlega villtir í holtaþoku og ég hvet þá til að kynna sér þessi mál því að þessar fullyrðingar standast engan veginn. Varðandi ræðu hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttur: Hvernig tengist það að búa til grænt rafmagn og minnka losun? Það er vegna þess að við notum græna rafmagnið í staðinn fyrir olíu. Til dæmis þurfum við olíu í fiskimjölsverksmiðjum núna af því að við eigum ekki grænt rafmagn. Það er tengingin, það er það sem heimurinn er að gera. Út á það ganga loftslagsmálin, að taka út jarðefnaeldsneyti og setja græna orku í staðinn.

Varðandi hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var einu sinni ekki bara hv. þingmaður, hann var líka hæstv. forsætisráðherra. Hann fór til Parísar með 70 manna sendinefnd þegar Parísarsamningurinn var gerður, með samflokksmann sinn, hæstv. umhverfisráðherra og hæstv. utanríkisráðherra og forseta lýðveldisins og sagði þar og hjá Sameinuðu þjóðunum og hér á 17. júní að við ættum að vera fremst meðal þjóða þegar kæmi að loftslagsmálum.

Vandinn var sá að það var ekki farið í jarðhitaleit þá, það var ekki farið í að búa til græna orku þá og við erum að lenda í vandræðum núna út af því að við tókum ekki þær ákvarðanir. Búið er að afnema niðurgreiðslu olíu. Það er búið að vera baráttumál Íslendinga í áratugi. Það snýr ekki bara að loftslagsmálum heldur líka sjálfbærni vegna þess að ríki eru að niðurgreiða olíu til að stunda rányrkju og annað slíkt í fiskveiðum. Þessi skýrsla sem hv. þingmaður vísar í er ekki neins staðar notuð.

Aðeins varðandi hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur og Viðreisn. Við höfum núna sett í lög væntanlega stærsta einföldunarfrumvarp sem hefur orðið að lögum, og þá er ég að tala um aflaukningu virkjana. Við höfum svo sannarlega verið að gera allt það sem hv. þingmaður er að vísa til. (Forseti hringir.) En ég spyr, af því að það er gott að finna stuðning frá Viðreisn í þessum málum: Hvernig getur Viðreisn komið að málum? Því að þetta snýr ekki að því að ráðherra geti ákveðið að virkja eða búa til græna orku. Það eru orkufyrirtæki, það eru sveitarfélög og annað slíkt (Forseti hringir.) og það væri fróðlegt að skoða það hvort orðum hafi fylgt efndir í því.

Varðandi skilgreininguna þá erum við á sama stað og aðrir, við erum að vinna í þeim málum (Forseti hringir.) og erum svo sannarlega ekki einir á báti þar. Við þurfum að ræða þetta oftar (Forseti hringir.) og meira, en aðalatriðið er að við verðum ekki dæmd af því sem við segjum heldur af því sem við gerum. (Forseti hringir.) Þessi ríkisstjórn er búin að rjúfa kyrrstöðuna þegar kemur að grænum orkumálum og loftslagsmálum og ég vonast til þess að fá að ræða það (Forseti hringir.) betur við annað tækifæri.