154. löggjafarþing — 39. fundur,  28. nóv. 2023.

sértækur húsnæðisstuðningur vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

537. mál
[16:52]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að lengja þennan lið mjög mikið. Ég vil bara þakka ráðherranum og hann starfsliði fyrir skjót og öflug viðbrögð í því að koma fram með þetta frumvarp. Ég veit að í ráðuneytinu var unnið alla helgina og í gær var málið kynnt fyrir velferðarnefnd. Auðvitað komu ýmis álitamál og sjónarmið þar fram og spurningar sem nefndin fær að glíma við þegar málið kemur til hennar á morgun. Ég geri ráð fyrir því að um þetta mál muni ríkja góð samstaða meðal þingmanna eins og verið hefur í þeim málum sem við höfum verið vinna hér að fyrir Grindvíkinga. Það ber að fagna því að allir flokkar í þinginu hafa staðið sem einn maður að því að klára þessi mál fljótt og vel. Við munum gera það. Hér hefur verið afskaplega vel að verki staðið og ég hlakka til að geta komið þessu máli í höfn, Grindvíkingum öllum til heilla.