sértækur húsnæðisstuðningur vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég fagna því hvað hæstv. innviðaráðherra og hans fólk í innviðaráðuneytinu brást skjótt við erfiðri stöðu með framlagningu þessa frumvarps sem ég sé ekki betur en að sé vel unnið og tekið á hinum ýmsum þáttum, eins og hæstv. ráðherra fór hér vel yfir. Mér líst vel á þá leið sem hér er farin til að koma til móts við Grindvíkinga á hrakhólum, leið sem byggir í meginatriðum á því húsnæðisbótakerfi sem við þekkjum en þó án tekju- og eignatenginga sem ég held að sé skynsamlegt í ljósi aðstæðna. Við í Samfylkingunni munum styðja þetta mál og ég hlakka til að fylgja því eftir í velferðarnefnd og heyra hvað umsagnaraðilar hafa til málanna að leggja. Við samþykktum í gær lög hér á Alþingi um að verja framfærslu Grindvíkinga í breiðri sátt. Nú tökum við þetta fyrir og ég geri ráð fyrir að það verði gert á þokkalegum hraða en þó þannig að hægt sé að vanda til verka.