sértækur húsnæðisstuðningur vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því, eins og þeir sem hafa talað hér á undan mér, að þakka fyrir framlagningu þessa máls sem skiptir miklu máli. Við sem búum á Suðurnesjum höfum verið mjög upptekin af þessu öllu saman og hvað verði nú um alla þá íbúa sem í Grindavík hafa búið. Það er okkur mikið hjartans mál að koma þeim í skjól á allan þann hátt sem þarf að gera.
Ég var reyndar ekki nógu skýr þegar ég óskaði eftir að fá að koma hér upp. Mig langaði í andsvar við hæstv. ráðherra en ég geri þá bara seinna. En það eru nokkur atriði sem ég hefði kannski viljað fá debatta aðeins um sem snúa m.a. að upphæðinni sem ég hefði nú viljað fá að vita hvernig er fengin. Þessar upphæðir miða við einn, tvo, þrjá og fjóra. Hvers vegna er ekki farið hærra, því að fjölskyldur geta jú verið stærri en fjórar manneskjur? Ég veit ekki alveg hvaðan þessar upphæðir koma og ég hefði gjarnan viljað fá skýringar á því hvernig þær eru fundnar. Þessi 150.000 kall upp í 250.000 þúsund, stórar fjölskyldur geta þurft að leigja sér einbýlishús sem getur þá kostað mikið. En við ræðum það þá bara í nefndinni í framhaldinu.
Ég var kannski ekki að hlusta, en skildi ég hæstv. ráðherra rétt þegar hann var að nefna það hér áðan að það þyrfti að skoða það að þetta þyrftu ekki endilega að vera allt samþykktar íbúðir? Vegna þess að við vitum að það er fullt af fólki í sumarhúsum. Ætti þá að leggja fram eitthvert mál sem væri þá sér? Náði ég því rétt að það stæði til að gera það þannig? Við vitum að sumarhús eru svokallaðir óleyfisbústaðir þannig að þú mátt ekki hafa búsetu í slíkum húsum. Mér skilst líka á frumvarpinu að það eigi að skrá þetta í þessa svokölluðu leiguskrá en það er auðvitað vandkvæðum bundið að skrá óleyfisbústaði í leyfisskrá þannig að ég held að það yrði aldrei samþykkt. Við þurfum aðeins að ná utan um það.
Svo velti ég líka fyrir mér dæmi um konu sem fór úr Grindavík niður í Voga og hún fór í kaupleigu. Hún hafði í engin önnur hús að venda og fór í kaupleigu þannig að hún er að borga verulega fjármuni í hverjum mánuði. Það má segja að þetta séu kaup en þetta er samt leiga. Þannig að maður veltir fyrir sér: Nær þessi stuðningur utan um slíka einstaklinga sem hafa þurft að grípa til þeirra úrræða að fara í kaupleigu til að bjarga sér?
Ég verð samt að segja að heilt yfir, þetta er svolítið stórt plagg og mér finnst að textinn gæti kannski verið einfaldari miðað við tilefni málsins og kannski þann tíma sem þetta á að gilda. En ég ætla ekki að gera ágreining um það heldur bara að lýsa því yfir að Viðreisn mun styðja þetta mál. Það skiptir máli að tryggja algjörlega afkomuöryggi Grindvíkinga á allan þann hátt sem hægt er. Nóg er nú samt sem Grindvíkingar þurfa að glíma við þessa dagana. — Ég ætla að láta þessu lokið og þakka bara fyrir framlagningu þessa máls.