landsskipulagsstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna og fyrir að leggja fram þessa þingsályktunartillögu. En mér er smávandi á höndum því að eins og hæstv. ráðherra talaði um þá má alveg dást að ýmsu verklagi í ráðuneytinu, þ.e. ég er mjög hlynnt svona grænbókar- og hvítbókarvinnu, en ég hef kannski ákveðnar væntingar til þess að það myndi skila sér í styttri og skýrari texta. Hér erum við með svolítið mörg orð varðandi þætti sem hér eru undir og ég er að velta sérstaklega fyrir mér lið 3 í lykilviðfangsefnunum sem er uppbygging þjóðhagslegra mikilvægra innviða. Þar segir um áherslur verkefnisins að það eigi að einfalda ákvarðanatöku um þjóðhagslega mikilvæga innviði flutningskerfa. Það tek ég heils hugar undir og styð hæstv. ráðherra heils hugar í þeirri vinnu. En ég velti því fyrir mér hvort við hefðum ekki þurft að hafa eitthvað meira um það, hvort við þyrftum ekki raunverulega að vera búin að leita leiða. Við erum á svo spennandi stað í að móta landsskipulag og ég hélt þessa ræðu örugglega síðast þegar við ræddum landsskipulag og ég spyr hæstv. ráðherra: Kom ekki til greina að vera hreinlega bara með uppdrátt af landinu og festa niður þjóðhagslega mikilvæga innviði? Hvar verða að vera hafnir? Hvar verða að vera flugvellir? Hvar verða að vera tengimannvirki eða veitumannvirki? Þetta væri þannig raunverulega toppurinn á skipulagsferlinu okkar eins og ég sá alltaf fyrir mér í upphafi þegar við byrjuðum með þetta landsskipulag og hvernig það myndi þróast. Þannig að spurningin mín er: Getum við verið enn skýrari og hreinlega verið bara með uppdrátt?