154. löggjafarþing — 39. fundur,  28. nóv. 2023.

landsskipulagsstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.

535. mál
[17:36]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en ég ætla að fá að vera svolítið óþolinmóð og vilja að hlutirnir gerist aðeins hraðar hvað þetta varðar. En ég skil algerlega það sem hæstv. ráðherra kemur inn á. Ég minnist þess nefnilega að hafa skrifað athugasemdir við fyrsta landsskipulagið, verandi þá formaður skipulagsnefndar og þátttakandi í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins, og það var auðvitað ákveðinn ótti því að eitt af því sem sveitarfélögin standa rosalega föst á er skipulagsvald þeirra og það er rosalega mikilvægt út frá sjálfstæði sveitarfélaga. En ég held að við höfum ítrekað áttað okkur á því að það eru þættir sem eru jafnvel enn mikilvægara heldur en sjálfstæði sveitarfélaga og skipulagsvald þeirra og það eru þjóðhagslega mikilvægir innviðir og öryggi lands og þjóðar. Það bara hreinlega trompar hinn þáttinn. Ég held að ef hæstv. ráðherra hefði komið hér með uppdrátt þar sem hann hefði lagt til t.d. að hér og hér megi vera vindmyllugarðar, hérna eigi að vera tengivirki og hér eigi að vera flugvellir og hafnir og annað, þá hefðum við örugglega rifist um það í einhver ár. En kosturinn við það væri, þegar við værum búin að ljúka því rifrildi, að þá værum við með uppdrátt, þá værum við með eitthvert samkomulag sem væri ramminn sem hægt væri að vinna áfram með.