landsskipulagsstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Herra forseti. Landsskipulagsstefna er plagg sem er í þróun og annað skipti sem við tökum hana til efnislegrar meðferðar. Ég vil kannski halda áfram með nákvæmlega það sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir kom inn á hér á undan, uppbyggingu þjóðhagslega mikilvægra innviða, sem er punktur 3 undir lykilviðfangsefnum, og fjalla kannski um það í ræðu minni á eftir. En það er þetta samhengi landsskipulagsstefnu við þjóðaröryggismál og helstu innviði landsins. Við samþykktum hérna í lok febrúar viðbætur við þjóðaröryggisstefnuna sem var samþykkt, minnir mig, í mars, apríl 2016 og hún snýr nákvæmlega að þessu. Þetta er stutt stefnuplagg, í 12 liðum, en í tölulið 7 segir í stefnunni, ef ég les það upp, með leyfi forseta:
„Að stuðlað verði að vernd og órofa virkni mikilvægra innviða og styrkingu áfallaþols samfélagsins gagnvart hvers kyns ógnum. Lögð verði áhersla á að tryggja skilvirkan og samhæfðan viðbúnað og viðbrögð til þess að takast á við afleiðingar hvers kyns ógna við líf og heilsu fólks, umhverfi, eignir og innviði. Tekið verði mið af ógnum sem tengjast loftslagsbreytingum, náttúruhamförum, fæðu- og matvælaöryggi, heilbrigðisöryggi og farsóttum.“
Það er víða komið við í stefnunni. Við höfum verið að taka á þessu á síðustu árum og byrjuðum kannski með vegalögum 2007 varðandi umferðaröryggi, sveitarfélög áttu að taka tillit til þess, og inn í fjarskiptalög á síðustu árum hafa líka verið tekin ákvæði sem snúa einmitt að svona öryggi og í loftferðalögunum sem við erum nýbúin að taka fyrir eru ákveðin ákvæði sem snúa að öryggishagsmunum. Síðan eru raforkulögin, flutningskerfi raforku og raflínufrumvarpið sem við erum nýbúin að fjalla um. Með landsskipulagið þá hefur verið talað um það skref að það eigi að huga að svoleiðis þjóðaröryggishagsmunum, en er kannski komin ástæða til að við förum að skoða þjóðaröryggislöggjöf eins og önnur þjóðríki í allri Evrópu, nánast öll, eru með, löggjöf um helstu innviði til að tryggja þá og samfélagslega þætti sem tengjast þeim?