154. löggjafarþing — 39. fundur,  28. nóv. 2023.

landsskipulagsstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.

535. mál
[17:43]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er eiginlega nákvæmlega málið eins og hæstv. ráðherra kemur inn á með Finnana og við getum farið nánast hringinn í Evrópu og meðal annarra Norðurlanda, við getum tekið löggjöfina í Svíþjóð, löggjöf Norðmanna og síðan vítt og breitt. Það eru skilst mér bara þrjú, fjögur lönd í Evrópu sem eru ekki með löggjöf sem snýr að þessum mikilvægu innviðum, þjóðhagslega mikilvægum innviðum. Þau lönd eru örfá. Í Svíþjóð eru þeir með Riksintresse, það er um flugvallarkerfið þeirra, þar eru 30 af 100 flugvöllum í Svíþjóð undir. Norðmenn eru með nýja löggjöf þar sem var verið að herða á þessu. Þetta held ég að sé raunverulega umræðan sem við þurfum að taka og þróa því að þegar menn hafa verið kannski ekki alveg sammála manni í þessu þá hefur helst verið bent á landsskipulagsstefnuna. Þetta er gríðarlega mikilvægt og í því ástandi sem við höfum séð skapast á Íslandi, t.d. í óveðrinu í desember 2019 og svo allt sem er búið að ganga á, innrás í Úkraínu núna, þá erum við og hljótum að vera komin á allt annan stað, þó ekki væri nema bara með rafvæðingu landsins og ef við ætlum að treysta flutningskerfi raforku og ætlum að treysta á græna orku þá verðum við að taka skref sem snúa að því að tryggja þessa innviði.