landsskipulagsstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra aftur fyrir þessa þingsályktunartillögu og langar að halda áfram þar sem frá var horfið þegar ég var í andsvörum við hæstv. ráðherra. Það sem ég óttast fyrst og fremst varðandi skipulagsmál hjá okkur er að við séum búin að byggja upp þannig kerfi að kerfið sé farið stundum að snúast meira í kringum sjálft sig en raunverulega fólkið sem það á þjóna. Þetta segi ég hafandi starfað mjög lengi að skipulagsmálum í mínu sveitarfélagi og farið í gegnum endurskoðun aðalskipulags, endurskoðun svæðisskipulags og fylgst með gerð landsskipulags. Ég er ekki búin að lesa þetta, ég skal alveg viðurkenna það, hæstv. forseti, en ég er búin að lesa megnið af þessu og ég held að það sé ekkert hérna sem ég sé ósammála, ég held ekki. En ég er alltaf í grunninn svolítið hrædd þegar við erum með þingsályktunartillögur hér fyrir þinginu sem eru með alveg ofboðslega mikinn texta því að ég óttast það alltaf svolítið að það séu ekki einhverjar raunverulegar ákvarðanir þarna sem skipta máli, þetta sé meira svona texti á blaði sem fer einhvern veginn inn í ferlið frekar en að það skili okkur einhverju. Það eru áhyggjurnar sem ég varpa hér fram og mér finnst ofboðslega mikilvægt að við höfum það í huga.
Eins og ég sagði í ræðu minni áðan þá hefði ég í fullkomnum heimi viljað sjá að þessari landsskipulagsstefnu hefði fylgt upp uppdráttur af landinu þar sem mikilvægir þjóðhagslegir innviðir væru fastsettir. Það væri bara hluti af landsskipulagi að ákveða þá. Ég átta mig á því að það verður ekki auðvelt að komast þangað, hvað þá að samþykkja slíkan uppdrátt og slíka stefnu, ég átta mig vel á því. En ég held engu að síður að það sé ofboðslega mikilvægt til framtíðar að við höfum slíkt skipulag. Að því sögðu, þegar kemur að þessum þjóðhagslega mikilvægum þáttum, getum við tekið t.d. veituinnviðina sem er áhersla B.5, og þar undir í punkti 8 segir:
„Skipulagsákvarðanir um raforkuflutningsmannvirki geri kleift að tryggja örugga afhendingu raforku, um leið og tekið er tillit til áhrifa á landslag og aðra landnotkun.“
Það hljóta allir að vera sammála þessu. En hvernig tryggjum við þetta, að þetta gerist raunverulega þegar hvert og eitt sveitarfélag er með sitt skipulag fyrir sig? Hvernig tryggjum við þá að veiturnar séu til staðar? Það er mitt áhyggjuefni.
Ég gleðst yfir því að við séum að fjalla hér um vindorkuna og hún sé sett inn í stefnuna. Ég hef örugglega sagt það áður við ráðherra umhverfis- og orkumála að ég er orðin mjög óþreyjufull varðandi það að við förum að taka einhverjar ákvarðanir þegar kemur að vindorkunni. Við getum framleitt töluvert af orku með vind og við eigum að framleiða meira af grænni orku og við hefðum þurft að vera búin að taka ákvörðun um hvar við ætlum að virkja vindinn og hvar við ætlum alls ekki að virkja vindinn. Því miður finnst mér okkur miða of lítið áfram í því. Þannig að ég segi aftur: Það er gott að nefna vindorkuna en hér liggja ekki fyrir ákvarðanir um hana
Ég held að það sé líka mjög mikilvægt að taka á vatninu okkar, þar er líka þessi spurning hvernig við tryggjum þetta. En stóra málið eru auðvitað þessir þjóðhagslega mikilvægu innviðir sem við þurfum að finna leiðir til að halda utan um og tryggja að þegar við erum búin að virkja á einum stað þá skili raforkan sér þangað sem við þurfum á að halda. Eins og ég sagði hér í umræðunni þá er það algerlega út úr kortinu að Ísland sé að reka raforkuver sem brennir dísilolíu. Það er bara algjör fásinna. Á tímum þar sem við erum að tala um loftslagsvá og við búum á norðurslóðum og sjáum raunverulega hvaða áhrif loftslagsbreytingar hafa þá er auðvitað stærsta málið bruni jarðefnaeldsneytis. Við erum að keppast við að rafvæða bílaflotann okkar sem er gott mál. En á sama tíma erum við með svæði á landinu okkar sem ekki eru tengd eða fá ekki nægjanlega mikið af grænni orku, sem við getum framleitt, og brenna þar af leiðandi dísilolíu. Þetta er galið. Mér finnst að það sé okkar hlutverk hér að tryggja að þetta sé ekki okkar framtíðarsýn, að tryggja það að hér nýtum við orkuna, þessa grænu orku sem við getum framleitt. Á sama tíma ætlum við að sjálfsögðu líka að huga að verndun náttúruperlna og ég er alls ekki að tala fyrir því að við eigum að virkja hverja sprænu eða vera með vindmyllur út um allar koppagrundir. Það er ekki það sem ég er að segja hér.
Að þessu sögðu vil ég óska nefndinni góðs gengis í að fara yfir þessa stefnu og eins og ég segi, ég held að hér sé ekkert sem fólk ætti almennt að vera ósammála. Það er kostur en kannski líka galli því það sem ég er svolítið að kalla eftir er að það séu teknar einhverjar raunverulegar ákvarðanir sem munu skila sér í þróun Íslands sem samfélags, bæði fyrir atvinnulífið en líka fyrir samfélagið sjálft. Ég heyrði hvað hæstv. ráðherra sagði við mig hér áðan í andsvörum og ég skil alveg af hverju það er farið svona hægt og verið svolítið í miðjunni og reynt að ná öllum saman að borðinu og svona og það er góð hugsun í því. En við megum ekki samt gleyma því að við þurfum að stefna fram á við og til þess að stefna fram á við getum við ekki alltaf verið í kyrrstöðu og tekið engar ákvarðanir, verið bara með fallegan texta um eitthvað sem við getum öll verið sammála um. Við þurfum raunverulega að bregðast við í einhverjum tilfellum. Ég skora á hæstv. ráðherra að hefja sem fyrst vinnu í ráðuneytinu varðandi endurskoðun næst á landsskipulagi og koma þá bara með uppdrátt af landinu og taka einhverjar ákvarðanir varðandi mikilvæga grunninnviði.