landsskipulagsstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Herra forseti. Við ræðum þetta plagg, sem er tillaga til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028. Svo að því sé haldið til haga þá held ég að vægi þessarar vinnu muni aukast í framtíðinni og eins og ég kom inn á í andsvari áðan við hæstv. ráðherra þá held ég að með tíð og tíma muni það fara hjá okkur eins og öðrum Evrópuþjóðum og þótt víðar væri leitað út fyrir Evrópu að það verði sett sérstök þjóðaröryggislöggjöf á Íslandi sem snýr að þessum mikilvægu innviðum ásamt fleiru sem varðar öryggishagsmuni Íslands.
Þegar ég sat hérna fór ég að velta fyrir mér síðustu árum og hvað við höfum verið að fást við. Förum bara aftur til desember 2019 og óveðursins á Norður- og Austurlandi þar sem stór hluti af flutningskerfi raforku skemmist eða laskast það mikið að það liggur niðri í töluvert langan tíma, eins og á Dalvík, ég held að þar hafi verið orkulaust í sex, sjö daga og varðskipið keyrði á olíu til að framleiða orku. Þá fóru flutningskerfi raforku mjög illa, fjarskiptakerfin fóru mjög illa. Síðan hefur verið gerð mikil gangskör í þeim málum og átakshópur, starfshópur vann mikið verk í því og áfram hefur verið unnið mikið í þeim málum. Síðan erum við með heimsfaraldur Covid-19 skömmu síðar, í mars 2020, innrás Rússlands í Úkraínu 24. febrúar 2022, þar sem við fórum að ræða fjölþáttaógnir, netöryggismálin, veikleika í fjarskiptakerfum og mikilvæga innviði í sjó eins og fjarskiptastrengi og landtökustaði þeirra. Eitt af því fyrsta sem ég hugsaði með ástandið í Grindavík var hvað hefði gerst ef við hefðum farið gömlu leiðina sem var áætluð fyrst varðandi fjarskiptastrenginn IRIS, þá hefði landtakan verið á svipuðum slóðum og þar sem mest gekk á 10. nóvember í Grindavík. Síðan var hann færður til Þorlákshafnar, ég þekki ekki söguna, hvort það var af tilviljun eða hvort hugsað var til þessara þátta. Síðan er þetta ástand núna í Grindavík og síðan má líta til Vestmannaeyja og þess sem snýr núna að kalda vatninu, rafstrengjunum fjarskiptastrengjum. Það er kannski dæmi um það hvað þarf lítið að gerast, eitt tiltölulega sérstakt slys og það fer mjög illa eins og ástandið sýnir sem hefur skapast þar.
Það sem ég hef kallað eftir í landsskipulagsstefnunni, þótt þetta sé góð viðbót frá fyrstu landsskipulagsstefnunni, er að auka það að skilgreina öryggisinnviði í landinu, innviði sem snúa að þjóðaröryggishagsmunum landsins. Það eru þessir grunninnviðir samfélagsins, mikilvægir samfélagslegir innviðir sem varða þjóðaröryggi, sem ég held að verði lykilumræða um í framhaldinu. Vonandi tökum við góða umræðu um þetta í nefndinni en við þurfum virkilega að fara að vinna að þessu, hvernig þessir hagsmunir verða tryggðir innan íslenskrar stjórnsýslu út frá ábyrgð og málefnasviði ráðuneyta og íslenskri löggjöf. Við höfum verið að taka slík skref, eins og ég benti á áðan í andsvörum, varðandi fjarskiptalög, raforkukerfin og flutningskerfin, raflínufrumvarpið fyrir stuttu síðan og vegalög og annað, það eru komin inn ákveðin ákvæði sem ættu að ýta undir þessa þróun og við erum að sjá skref sem snúa að þessu tekin víðs vegar í löggjöfinni, en ég held að við þurfum að samþætta þetta betur og taka þetta í eitt plagg og þar verði endastöðin. Það þarf að skilgreina hvaða grunninnviðir íslensks samfélags eiga að vera skilgreindir sem mikilvægir með tilliti til þjóðaröryggishagsmuna. Í samgöngukerfinu eru það vegir, brýr, ferjur, flugvellir og slíkt með sama hætti og Svíar gera með Riksintresse og eins og hæstv. ráðherra kom inn á varðandi Finna, hvernig þeir takast á við þessi mál. Þar ættu líka að vera helstu þættir raforkukerfisins eins og virkjanir, flutnings- og dreifikerfið, afhendingaröryggi raforku, varaafl og stýringar og hvernig þessir innviðir eru skilgreindir út frá þjóðaröryggishagsmunum.
Við getum síðan farið mjög ítarlega í einstaka þætti en það þarf að vera á hreinu í löggjöf hverjir bera ábyrgð á samfélagslegum innviðum, svo sem flug- og vegasamgöngum, afhendingaröryggi raforku og virkni fjarskiptakerfa á landsvísu. Það er líka mikilvægt atriði sem kemur þá einmitt inn á landsskipulagsstefnu að skoða stöðu helstu grunninnviða íslensks samfélags sem varða þjóðaröryggismál gagnvart skipulagsmálum og hvernig þeir eru tryggðir í löggjöf og, eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir kom inn á, hvort landsskipulagsstefnan eigi að vera efsta útgáfan fyrir allt landið. Síðan erum við með svæðisskipulag, aðalskipulag og deiliskipulag. En þetta eru hlutir sem ég held að sé mjög mikilvægt að skoða hvernig eigi að fara með. Útgangspunkturinn er spurningin um hvort ekki sé nauðsynlegt að það sé skilgreint í landsskipulagsstefnu hvaða innviðir landsins teljast til grunninnviða samfélagsins, samanber nýsamþykkta þjóðaröryggisstefnu, og séu mikilvægir út frá þjóðaröryggi landsmanna, eins og ég kom inn á; samgönguinnviðir, raforku- og fjarskiptakerfi.
Ég hef í gegnum árin bent á, og það eru örugglega orðin tíu ár síðan ég byrjaði að ræða þessi mál í bæjarstjórn Akureyrar, hvernig Svíar fara með þessi mál hjá sér með Riksintresse og hvernig almennt er staðið að þessum málum í Evrópu varðandi samgöngumannvirki, vegsamgöngur, brýr, vegi o.s.frv. Svíar eru t.d. með 30 af 100 flugvöllum undir hugtakinu Riksintresse hjá sér, en hugtakið nær yfir þeirra helstu grunninnviði og það er slík löggjöf sem ég held að þyrfti að búa til eða framkvæma hér á Íslandi og vinna að því að hún verði til sem allra fyrst. Riksintresse hjá Svíunum nær yfir orkumannvirkin, flutningskerfin, þeir eru með brýr, lestarteina og alla sína grunninnviði og það er allt skilgreint, þetta hefur ákveðna stöðu í landinu og skýrt hvernig staðið er að málum, það megi ekki veikja þessa öryggishagsmuni.
Í nýrri samgönguáætlun sem við erum einmitt að fjalla um núna er einmitt gengið fram í því að tryggja öryggi og fækka slysum sem er kannski svona leiðarljósið í þeirri áætlun. Hún fellur þannig í sjálfu sér líka að þessum sjónarmiðum sem við erum að ræða hér. Það eru ákvæði í vegalögum sem ná alveg aftur til 2007, ef ég man það allt rétt, og þar í 2. mgr. 28. gr. er sérstaklega komið inn á þennan þátt. Það sem stendur í löggjöfinni, með leyfi forseta, ef ég les það upp:
„Ákveða skal legu þjóðvega í skipulagi að fenginni tillögu Vegagerðarinnar að höfðu samráði Vegagerðarinnar og skipulagsyfirvalda. Fallist sveitarfélag ekki á tillögu Vegagerðarinnar skal það rökstyðja það sérstaklega. Þó er sveitarfélagi óheimilt að víkja frá tillögu Vegagerðarinnar ef það leiðir til minna umferðaröryggis en tillagan felur í sér.“
Þetta er 16 ára gömul löggjöf. Þarna er komið inn á öryggið þannig að við getum tínt margt til sem snýr að þessu.
Það mætti líka koma inn á það hér hvort það hafi verið metið hvort sú landsskipulagsstefna sem hér er lögð fram sé mögulega íþyngjandi fyrir minni sveitarfélög. Svo mætti aðeins skoða, sem á náttúrlega almennt við þegar við erum að vinna okkar störf hérna við löggjöfina og setja lög, hvort það væri ekki gott að hafa orðskýringar og að þær séu nægilega skýrar, um t.d. huglæg orðatiltæki eins og búsetufrelsi og vistvænn ferðamáti, til þess að það sé enginn vafi á því um hvað er verið að tala þegar ákveðin hugtök eru notuð.
Það er síðan mjög gleðilegt, eins og hefur komið fram hér hjá fleiri hv. þingmönnum, að hér er farið að ræða um vindorkuna sem ég held að sé gríðarlega mikilvæg og mjög mikilvægt að það sé farið að minnast á hana í landsskipulaginu.
Ég vil að lokum ítreka enn og aftur mikilvægi þess að við skilgreinum þá innviði sem varða þjóðaröryggishagsmuni Íslands, þ.e. grunninnviði samfélagsins og mikilvæga samfélagslega innviði sem varða þjóðaröryggi og hvernig þeir hagsmunir eru tryggðir innan íslenskrar stjórnsýslu út frá ábyrgð og málefnasviði ráðuneyta og íslenskri löggjöf. — Ég hef lokið máli mínu, herra forseti.