landsskipulagsstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu fyrir árin 2024–2038. Þegar flett er í gegnum þetta ágæta plagg þá er margt sem fangar augað og maður veltir fyrir sér hverju maður hefur mestan áhuga á til að fjalla um. Þar hnýtur maður um ákveðna hluti og ég ætla alla vega að eyða mínum tíma hér í þessum ræðustól til að fjalla um það hvernig við skipuleggjum land og hvernig við ætlum okkur að nýta land, hvort sem er til matvælaframleiðslu eða til annarra þátta. Land og nýting á landi hefur verið í gegnum árin ákveðið bitbein á milli manna í gegnum aldir og við þekkjum það nokkuð vel í gegnum þá sögu sem við höfum lifað að yfirleitt hafa menn tekist á um hvernig skuli nýta landið og hver eigi landið. Mér finnst það koma ágætlega fram í þessari tillögu sem hér er um rætt, það eru ágætisleiðir að markmiðum og hvernig það skal gert. Ég get alveg tekið undir orð hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur hér áðan þegar hún kvað fast að orði um að það þyrfti stundum að taka svolítið í lurginn á skipulagsyfirvöldum í hvert skipti fyrir sig. Ég get alveg tekið undir það og sérstaklega í því samhengi þegar við ræðum um skipulag á landi í t.d. hinum dreifðu byggðum, þá erum við líka að tala um frekar fáa einstaklinga sem koma að ákvarðanatöku og flestir þeir sem málið varðar eru tengdir. Vissulega er þetta eldfimt en við verðum samt að gera þetta vegna þess að það er orðið þannig að land er virkilega eftirsótt eign. Spurningin er alltaf: Hvernig ætlum við að nýta landið sem best?
Land er og verður ein mikilvægasta eign eða auðlind hverrar þjóðar hverju sinni og við getum horft til þess að það að fjárfesta í landi er svipað og fjárfesting í gulli. Land fellur aldrei í verði og á þeim tímum sem við lifum í dag horfa menn til ýmissa annarra landnota heldur en við gerðum hér fyrr á árum þar sem við vorum bara með kýr í túni og kindur á beit úti í haga og slógum síðan engjarnar. Öldin er önnur í dag. Erlendir aðilar horfa til þess að eignast land hér, hver tilgangurinn er er ekki alveg ljóst. Við sjáum það sömuleiðis að það er töluverð ásókn frá einkaaðilum í að kaupa land til að stunda kolefnisjöfnun og annaðhvort eignast menn landið eða taka landið á leigu af bændum sem þar búa og oft og tíðum erum við að horfa á land sem væri t.d. mjög hentugt til annarra nota heldur en að til þess eingöngu að planta trjám eða einhverju öðru.
Það eru uppi áform í mörgum stefnum sem stjórnvöld hafa verið að ræða, við getum komið þar inn á matvælastefnu t.d., og það er mjög mikilvægt í því samhengi þegar við erum að ræða allar þær stefnur sem stjórnvöld hafa lagt fram að þær tali hver við aðra. Það er komið inn á það hér á bls. 17, ef ég man rétt, virðulegur forseti, þar sem er tekið á samþættingu við aðrar stefnur og áætlanir og að þær eigi að tala saman. Þar á ég við í því samhengi að það er mjög mikilvægt þegar við horfum til þess að efla hér akuryrkju, hvort sem er í kornrækt eða í annarri akuryrkju eða útiræktun á grænmeti o.s.frv., að það liggi fyrir hvernig við ætlum að nýta landið, að við séum ekki búin að ráðstafa því á einhvern annan hátt, hvort sem er undir byggingu á hóteli eða golfvelli eða hvað sem er. Nú eru þetta allt ágætir hlutir, ég er ekki að taka þá niður. En mikilvægi þess að við verjum okkar verðmætasta ræktunarland er gríðarlega mikið. Það er hverri þjóð mjög mikilvægt að reyna að vera sjálfri sér nóg hvað það varðar að vera sjálfbær með framleiðslu á matvælum þó að við eigum þar því miður enn langt í land. En við eigum mjög mikið af landi og við eigum mjög mikið af ósnortnu landi sem við getum svo hæglega nýtt til matvælaframleiðslu.
Í kaflanum um markmið um vernd umhverfis og náttúru, sem er mjög áhugaverður kafli og tekur á ýmsu, er komið inn á þau skipulagsmál sem koma að sveitarfélögum og þær stofnanir sem geta komið þar að, t.d. Land og skóg sem er mikilvæg stofnun í þeirri nýtingu sem við verðum að horfa til, og sömuleiðis hvernig við ætlum að umgangast auðlindina sem er á miðhálendinu og þar þurfum við — við höfum gert það undanfarin ár, það má ekki gleyma því heldur — að stíga varlega til jarðar og endurskoða þau áform sem við höfum haft uppi varðandi nýtingu, t.d. með beitarafnot og annað. Það er allt of langt mál fyrir okkur að fara út í það akkúrat núna. En það er mikilvægt að nýta öll verkfærin í verkfærakistunni sem við höfum hverju sinni til þess að ná markmiði okkar og markmiðið verður alltaf það sama, vona ég. Við getum litið á okkur sem vörslumenn landsins, þeir sem þar sitja hverju sinni, og verkefni okkar er að skila því í betra ástandi en við tókum við því til komandi kynslóða. Það er stóra verkefnið. Við eigum að reyna að nýta landið og hafa nýtinguna á sjálfbæran hátt til þess að þjóðfélagið geti byggt sína velsæld o.s.frv. á því sem landið gefur.
Það hefur verið komið inn á ýmsa þætti í umræðunni sem eru áhugaverðir og mig langar, virðulegur forseti, að koma inn á einn áhugaverðan þátt, þeir voru nú fleiri að vísu, sem hér var komið inn á. En áður en ég fer í það þá langar mig að segja frá því að fyrir nokkrum vikum vorum ég og hv. þm. Ingibjörg Isaksen á bændafundi í Norðausturkjördæmi og þar lögðu bændur mjög mikla áherslu á það, þegar horft er til framtíðar, að tryggt verði aðgengi að ræktunarlandi. Við vorum að funda í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu og austur á landi og þar er þetta orðið verulega sjáanlegt, þessi ásókn annarra en þeirra sem stunda matvælaframleiðslu og kapphlaup um landið. Þar af leiðandi er mjög mikilvægt að skipulagsmálin séu í lagi.
Að lokum, virðulegur forseti, vil ég koma inn á ákveðinn punkt sem hv. þm. Ágúst Bjarni Garðarsson kom inn á í sinni ræðu, sem eru fjarskiptamálin. Það er, held ég, að verða bara verulegt umhugsunarefni fyrir okkur sem búum úti á landi og keyrum vítt og breitt um landið hversu afskaplega lélegt fjarskiptasambandið er orðið vítt og breitt um landið, og hvernig við bætum það. Þetta kemur vissulega inn á þann þátt sem hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson ræddi, þetta er öryggisatriði í því hvernig við byggjum landið og þetta er hluti af þeim innviðum og skipulagi sem við þurfum að hafa við höndina hverju sinni. Ég vil bara ítreka hér að lokum að þau fjarskipti sem fólki úti á landi er boðið upp á í dag eru því miður þannig að ég held að mjög fáir myndu sætta sig við þau, miðað við hvernig þeim málum er komið fyrir (Forseti hringir.) og mjög mikilvægt að við ræðum það við einhverja aðra umræðu hér, virðulegi forseti. — Ég hef lokið máli mínu.