Forgangsröun í ríkisrekstri.
Virðulegi forseti. Verðbólgan er ekki á niðurleið. Ef eitthvað er þá er hún að hækka. Við erum að sjá vexti halda áfram að vera í hæstu hæðum. Við erum að sjá ríkisstjórnina skila halla á fjárlögum til 2028, hið minnsta, við erum að horfa upp á í rauninni verklausa ríkisstjórn þegar kemur að aðhaldi í fjárlögum. Ef Viðreisn væri þar sem fjármálaráðherra er þá myndi Viðreisn leggja ofuráherslu á að sýna aðhald í ríkisrekstri, draga saman ríkisfjárlög áður en það verða settar álögur á heimilin í landinu, áður en við förum í þær reddingar að auka álögur í landinu. En auðvitað er það þannig að þessi ríkisstjórn fór í það bara nýlega að hækka skatta og núna um næstu áramót þá verður farið í enn eina skattahækkunina sem ríkisstjórnin ætlar að nota til að stoppa í og fylla upp í fjárlagagatið. Nú er desember að koma og alls staðar eru heimilin í landinu, fyrirtækin í landinu, að velta fyrir sér hverri einustu krónu — hvar á að forgangsraða? hvernig eigum við að forgangsraða? — ekki síst núna þegar desember er að detta inn með öllum þeim útgjöldum sem eru fyrirsjáanleg. Við erum hins vegar að upplifa 11% húsnæðisvexti og mesta umfang yfirdráttarlána í dag í sögulegu samhengi. Umboðsmaður skuldara segir þetta vera dulin vanskil. Heimilin í landinu eru sem sagt að forgangsraða í sínu heimilisbókhaldi.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hvaða samtal hefur ríkisstjórnin átt við ríkisstjórnarborðið? Hvaða forgangsröðun hefur átt sér stað við ríkisstjórnarborðið? Því eins og ég gat um áðan er eina forgangsröðunin hjá ríkisstjórninni einfaldlega að fara í það að hækka beint skatta, bæði nýlega og um næstu áramót. (Forseti hringir.) Það hefði ekki komið mér á óvart ef þetta væri harðkjarna vinstri stjórn (Forseti hringir.) en Sjálfstæðisflokkurinn var engin fyrirstaða þegar kom að því að hækka skatta. Ég er að kalla eftir forgangsröðun í ríkisrekstri. (Forseti hringir.) Hvaða merki munum við sjá núna af hálfu ríkisstjórnarmeirihlutans þegar 2. umræða fjárlaga mun eiga sér stað í næstu viku?