forgangsröðun í ríkisreksstri.
Herra forseti. Ég vil nú byrja á því að segja að það er bæði ánægjulegt en líka áhugavert — en nú beinir hv. þingmaður fyrirspurn til mín en ekki öfugt — að heyra þingmanninn leggja á það áherslu að aðhald þýði fyrst og fremst að draga úr útgjöldum, vegna þess að ég veit að hagfræðilega gengur upp að segja aðhald sé hvort tveggja, að sækja meiri skatta og draga úr útgjöldum. En mér finnst einhvern veginn eðli máls samkvæmt aðhald vera frekar að draga úr útgjöldum, þannig að ég er sammála hv. þingmanni í því að þegar talað er um aðhald þá sé talað um að draga úr útgjöldum en ekki að það sé hægt að fara í meiri háttar aðhaldsaðgerðir með því að sækja meira af annarra manna fé.
Við erum í þessum fjárlögum að boða hagræðingu og hagræðingarkröfu upp á 17 milljarða. Það var tímabært. En það er alveg verkefni fyrir kerfin öll að finna út úr því hvernig því verður náð. Það er ekki lítill biti fyrir fólk, stofnanir, forstöðumenn o.s.frv., sérstaklega ekki þegar við setjum ekki hagræðingarkröfu á langstærstu útgjaldaliði ríkisins.
Hins vegar hef ég verið þeirrar skoðunar, og það eru ekki nýjar fréttir, held ég, að útgjöld ríkisins séu gríðarlega mikil og það sé forgangsverkefni fyrir okkur, ef við ætlum að stuðla að sjálfbærum ríkisrekstri og geta staðið undir þeim dýru velferðarkerfum sem við viljum geta gert til langrar framtíðar, að hagræða enn frekar og huga að því í hvað við verjum fjármunum skattgreiðenda. Að það sé ekki einhver bylting í því á milli umræðna held ég að ætti ekki að koma neinum á óvart. Eftir mínar örfáu vikur í starfi hef ég auðvitað lagt mikla vinnu í það að kortleggja hvar möguleikar eru til að ná slíku fram. Þar skiptir líka máli að það styttist í vinnu við fjármálaáætlun og ég fagna því að hér séu bandamenn í því að horfa til leiða hvernig við getum farið betur með fjármagn skattgreiðenda.