forgangsröðun í ríkisrekstri.
Virðulegi forseti. Mér fannst ég greina ákveðna gagnrýni á forvera hæstv. ráðherra í starfi en látum það liggja milli hluta. Ég fagna því að hér er ráðherra sem ætlar að koma og tala um aðhald en ekkert heimili í landinu fer í flatan niðurskurð eins og þessi ríkisstjórn er búin að boða og skikka sínar stofnanir til að fara í. Hverri einustu krónu er velt fyrir sér og það er forgangsraðað og ef ríkisstjórn nennir ekki að forgangsraða eða treystir sér ekki til að forgangsraða þá er betra að hún segi það einfaldlega hreint út. Það er það sem við þurfum að heyra. Hvaða samtal hefur raunverulega átt sér stað við ríkisstjórnarborðið? Það eina sem mér finnst ég verða vör við er einfaldlega mjög útgjaldaglaðir ráðherrar úti um allar koppagrundir. Verðbólgan er á ábyrgð ríkisstjórnarinnar í landinu. Háir vextir eru líka á ábyrgð ríkisstjórnarinnar í landinu. Auðvitað eru aðrir aðilar, vinnumarkaðurinn og Seðlabankinn, en það gengur ekki (Forseti hringir.) að ríkisstjórnin trekk í trekk skili auðu af því að hún nennir ekki að taka óþægilegu samtölin við ríkisstjórnarborðið.