forgangsröðun í ríkisrekstri.
Herra forseti. Það er auðvitað ekki flatur niðurskurður þegar margir liðir eru undanskildir en þar sem er niðurskurður þá hefur nálgunin verið sú. En það er síðan sérstakt aðhald bæði á ráðuneyti og stofnanir þeirra. Ég er auðvitað ekki sammála því að það sé ríkisstjórnin sem einhvern veginn eigi þá miklu verðbólgu sem er í landinu og þar með er ég ekki að draga úr því hlutverki sem stjórnvöld hafa, fjárveitingavaldið o.s.frv. í því verkefni. En ef við greinum bara hvað það er sem keyrir áfram verðbólguna þá er það fyrst og fremst — eða vegur þyngst, ég ætla ekki að segja fyrst og fremst, þær miklu launahækkanir undanfarinna ára umfram framleiðnivöxt í landinu. Það væri mjög til bóta ef við hér ræddum meira um það hver verðmætasköpunin er á Íslandi per vinnustund og hvernig við náum henni upp. Hvernig ætlum við að stýra því til lengri tíma að auka verðmætasköpun (Forseti hringir.) þegar við horfum fram á lýðfræðilega þróun sem mun kosta okkur mikið og horfum til þess að bæði undanfarin ár hafa verið áföll (Forseti hringir.) og komandi ár verða örugglega áfram áföll. Þá verðum við einfaldlega að líta á það hvernig við náum fram verðmætasköpun per vinnustund (Forseti hringir.) til að eiga fyrir öllu því sem gerð krafa er um frá öllum að við séum að setja pening í.
(Forseti (BÁ): Forseti minnir hv. þingmenn og hæstv. ráðherra á að ræðutími er takmarkaður í óundirbúnum fyrirspurnum, tvær mínútur í fyrri ræðu og ein mínúta í síðari ræðu.)