stefna stjórnvalda á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna.
Virðulegur forseti. Mig langar hér að beina fyrirspurn til hæstv. forsætisráðherra er varðar stefnu stjórnvalda gagnvart COP-ráðstefnunum, COP28 í þessu tilviki, sem hefst á morgun. Fyrir ráðstefnuna sem haldin var í Glasgow í lok árs 2021 var lagt fram skjal stjórnvalda sem stefnuskjal undir yfirskriftinni On the Path to Climate Neutrality. Ég bið hæstv. forseta afsökunar á því að segja þetta bara á ensku en skjalið er ekki til á íslensku þrátt fyrir að ítrekað hafi verið beðið um þýðingu á því. Þetta skjal var lagt fram fyrir COP26 í Glasgow. Fyrir umhverfis- og samgöngunefnd mættu síðan fulltrúar umhverfisráðuneytisins í aðdraganda ráðstefnunnar sem haldin var í Egyptalandi í fyrra, í nóvember 2022, og staðfestu að þetta skjal væri enn þá stefnuskjal stjórnvalda gagnvart því sem þar færi fram.
Í umræðu um ráðstefnuna sem hefst á morgun spurði formaður Miðflokksins, hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, umhverfisráðherra út í þessa skýrslu og spurði, með leyfi forseta, „hvort enn sé í gildi skýrslan sem skilað var fyrir“, eins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kallaði það í gær, „26. lokatilraunina til að bjarga heiminum“. Og Guðlaugur Þór Þórðarson, hæstv. umhverfisráðherra, svaraði því til, með leyfi forseta: „Þessi skýrsla sem hv. þingmaður vísar í er ekki neins staðar notuð.“ — Er ekki neins staðar notuð. Það er sem sagt þessi skýrsla sem hefur í tvígang verið lögð fram sem stefnuskjal stjórnvalda gagnvart COP26 fyrst og síðan COP27. Ég spyr nú hæstv. forsætisráðherra hvort það hafi verið tekin ákvörðun um að leggja fram annað stefnuskjal, hvort ríkisstjórnin sé stefnulaus eða hvort þetta sé gert með einhverjum öðrum hætti í þetta skiptið úr því að þetta plagg hefur í tvígang verið lagt fram sem stefnuskjal stjórnvalda.
(Forseti (BÁ): Forseti minnir hv. þingmenn á að vísa til annarra hv. þingmanna með þeim formála og ráðherra sem hæstv. og minnir líka á að það er einfalt mál að snara stuttri fyrirsögn á íslensku ef svo ber undir.)