154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

stefna Íslands á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna.

[15:15]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra svarið. Má þá skilja það sem svo að það sé ekki neitt sjálfstætt plagg sem almenningur getur sótt í, jafnvel þótt á ensku sé, til að glöggva sig á annað en bara lagasafnið almennt og það sem hefur verið samþykkt hér í þinginu? Það er þá bara ágætt að það liggi fyrir að þetta plagg frá október 2021, sem tvisvar hefur verið stefnuplagg stjórnvalda gagnvart COP-ráðstefnunum, sé eins og hæstv. umhverfisráðherra orðaði það í gær: „Þessi skýrsla sem hv. þingmaður vísar í er ekki neins staðar notuð.“

En mig langaði að spyrja, af því að hæstv. forsætisráðherra er nú í raun ráðherra íslenskunnar þó að málefnum hennar sé kannski skipað annars staðar í ráðuneyti: Þekkir hæstv. ráðherra mörg dæmi þess að plagg sem þetta, sem gerir hvorki meira né minna en að ramma inn stefnu stjórnvalda gagnvart loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sé ekki til á íslensku? Þekkir hæstv. ráðherra mörg slík dæmi? (Forseti hringir.) Og kann hæstv. ráðherra einhverja skýringu á því að plaggið sé einvörðungu til á ensku?