aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum.
Hæstv. forseti. Í gær flutti hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þinginu munnlega skýrslu um 28. loftslagsþing Sameinuðu þjóðanna sem hefst á morgun. Miklar vonir eru bundnar við COP28 og deginum ljósara að þar verða ríki heims að koma sér saman um mikinn og skjótan samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda eigi að vera einhver von um að halda hlýnun jarðar innan 1,5°C. Það er allt undir. Lífið eins og við þekkjum það á jörðinni er undir. Það olli mér djúpum vonbrigðum í umræðunni í gær að það fengust engin skýr svör frá hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um það hvað Ísland ætlaði að leggja til málanna í Dúbaí. Aðgerðaáætlun hefur ekki verið uppfærð eins og allir vita og það virðist enginn innan stjórnkerfisins vita hvernig eigi að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi þannig að lögfestum markmiðum verði náð. Því langar mig að nýta þetta tækifæri, forseti, til að spyrja hæstv. forsætisráðherra, leiðtoga þessarar ríkisstjórnar og ábyrgðarkonu hennar allrar:
Hvað hyggst Ísland leggja til málanna á COP28? Hvernig hyggst ríkisstjórn Íslands sýna fram á samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda á næstu árum á COP28? Hvað hyggst ríkisstjórnin leggja til nýja hamfarasjóðsins, kenndur við Loss and Damage, á ensku, eða tjón og tap? Og hvernig ætlum við, íslensk þjóð, íslensk yfirvöld, að standa undir þeirri ábyrgð á COP28 að vera stórlosendur gróðurhúsalofttegunda en jafnframt kannski það ríki í heiminum sem er í bestum færum til að draga hratt og örugglega úr þeirri sömu losun? Ég hlakka til að heyra svör hæstv. forsætisráðherra.