aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum.
Forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svörin. Það er gott að heyra að loksins verði skilað uppfærðri aðgerðaáætlun þótt það hefði auðvitað verið miklu betra og eðlilegra að henni hefði verið skilað fyrir COP28 og reyndar löngu fyrr, því að við verðum að vita með hvaða aðgerðum sem stjórnvöld beita sér fyrir við ætlum að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Það verða að vera almennar upplýsingar, það verður að vera skýr stefna og fyrir trúverðugleika Íslands á COP28 og í samfélagi þjóðanna þá skiptir líka máli að geta sagt full trausts frá því hvað er að gerast heima hjá okkur. Þess vegna hvet ég hæstv. forsætisráðherra til að tala skýrt í þeim efnum. Það verður fróðlegt að sjá hvert framlag Íslands verður til nýja hamfarasjóðsins. Það skiptir líka máli og auðvitað verður hann lykillinn, væntanlega, að árangri COP28. Og ég held að — útfösun jarðefnaeldsneytis, að sjálfsögðu. En er ekki komið að því, hæstv. forseti, að Ísland þurfi að beita sér fyrir því að ekki verði unnin meiri olía og gas úr jörðu?