um fundarstjórn forseta.
Herra forseti. Ég er komin hingað upp til að vara yður að leggja til það sem þér virðist ætla að gera hér og fæli í sér, að mínu mati, mestu hneisu þingsins í nærri fimm ár a.m.k.
Brussel flokkurinn, sem við stofnun fyrir nærri 100 árum kallaði sig Sjálfstæðisflokkinn, ætlar nú að leggja það til að keyrðar verði í gegn 14 Evrópusambandsgerðir án eðlilegrar umræðu og þinglegrar meðferðar, mál sem varða m.a. hluti sem hæstv. ráðherrar ríkisstjórnarinnar höfðu varað sérstaklega við og talið með þeim erfiðustu sem EES-samningurinn hefði fært okkur. Ég efast um, hæstv. forseti, að jafnvel hinir hefðbundnu Evrópusambandsflokkar eins og Samfylkingin myndu standa að innleiðingu með þessum hætti og jafnvel ekki Viðreisn. [Hlátur í þingsal.] Og herra forseti. Ég er ekki einu sinni viss um að Píratar myndu leyfa sér að ganga fram með þessum hætti. [Hlátur í þingsal.]