154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

um fundarstjórn forseta.

[15:45]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég tek bara heils hugar undir þetta. Þetta er stórfurðulegt mál, að það skuli vera að koma með þessar 56 blaðsíður inn í þingið á sama tíma og við erum að vinna mál fyrir Grindavík, nýbúin að klára launamálin og núna erum við að tala um leigumálin, og þá á að skella þessu allt í einu hérna inn. Ég gjörsamlega botna ekki í þessu. Svo er sagt að þetta sé dagsetningarmál. Þetta er ekki dagsetningarmál. Það tekur ekki gildi fyrr en allir eru búnir að samþykkja það þannig að við getum bara leyft þessu að fara fram yfir áramót og gert þetta vel og vendilega. Við þurfum ekkert að taka þetta fyrir í dag. Síðan á að fara að taka lengri fund. Það var hægt að hafa lengri fund í gær. Ég sé enga ástæðu fyrir því að við séum að djöfla þessu máli í gegn. Þetta er mál sem við þurfum að ræða vel og vendilega.