154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

um fundarstjórn forseta.

[15:47]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Við vorum búin að vara við þessu og tala um að við óttuðumst að þetta færi svona. Nú erum við búin að sitja auðum höndum í nokkrar vikur þar sem ríkisstjórnin hefur ekki verið að koma með málin sem hún var búin að tímasetja samkvæmt sinni eigin áætlun. Fyrir þessu geta verið ýmsar ástæður og mig langar til þess að giska á þrjár og ég hvet bara stjórnarþingmenn eða fulltrúa ríkisstjórnarinnar eða aðra til að segja mér hver ástæðan er ef hún er einhver af þessum þremur. Það fyrsta sem mér dettur í hug og kannski í besta falli er trassaskapur og frestunarárátta. Önnur ástæðan gæti hreinlega verið bara vanvirðing við þingið, að ríkisstjórnin líti á Alþingi sem einhvers konar afgreiðslubatterí fyrir þeirra mál, eða að hreinlega er verið bókstaflega að koma í veg fyrir lýðræðislega umræðu um málin.