154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

um fundarstjórn forseta.

[15:48]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Af því að tíminn er takmarkaður þá náði ég ekki að koma inn á það sem ég vildi nefna sérstaklega í þessu samhengi. Nú eru 11 þingdagar eftir samkvæmt starfsáætlun Alþingis. Hérna er mál með innleiðingu 14 EES-gerða, 35 greina almenns eðlis, 50–60 bls. með greinargerð. Með hvaða hætti sér hæstv. forseti fyrir sér að umsögnum um þetta mál verði háttað? Á að gefa umsagnaraðilum um allan bæ tvo, þrjá daga til að gefa sínar umsagnir? Það er auðvitað ekki nokkur bragur á þessu og haganlegast væri held ég að hæstv. forseti tæki þetta mál af dagskrá hér en annars að við þingmenn sem hér sitjum í sal mótmælum þessu auðvitað bara og greiðum atkvæði gegn því að þetta tiltekna mál, sem er nr. 3 á dagskránni, verði tekið hér á dagskrá með afbrigðum.