154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

um fundarstjórn forseta.

[15:52]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Við vinnum auðvitað þá vinnu sem þarf að vinna. Það er ekkert flókið við það. En þetta er ákveðið sjálfskaparvíti, þetta ástand sem hv. þm. Hildur Sverrisdóttir talaði hérna um áðan. Þegar ríkisstjórnin kemur með málin á síðustu stundu þá verður ástandið eins og það er. Það er verið að búa til álagspunkta. Og á álagspunktum, bara sögulega séð, þá höfum við séð það að mistök hafa átt sér stað í lagasetningu, mistök sem hafa kostað milljarða í dómsmálum — milljarða. Það eru þó nokkur enn sem vofa yfir okkur sem eru einmitt þannig, kláruð undir lok kjörtímabils eða undir lok þings. Þannig að það skiptir máli að ríkisstjórnin gefi þinginu góðan tíma til að klára og þá þarf að koma með málin tímanlega. Þetta er ekki flókið. Þetta ástand sem hér er talað um og gerist einhvern veginn reglulega, er búið til af því að ríkisstjórnin skilar seint og heimtar að þingið klári. Hættum því.