154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

um fundarstjórn forseta.

[15:57]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Mig langar undir þessum lið að minna á það að nýlega lýstu almannavarnir yfir neyðarástandi í Vestmannaeyjum. Ég tel mjög mikilvægt að þingið taki til umfjöllunar það ástand sem þar ríkir í vatnsmálunum og að við fáum skýrslu um þau mál, hvar þau standa, og að þingið verði upplýst um það hvernig staðan er á þessum málum úti í Eyjum vegna þess að staðan þar er grafalvarleg. Hún er grafalvarleg. Þetta er enn eitt áfallið sem er að ríða yfir þetta þjóðarbú ef verstu sviðsmyndir teiknast upp úti í Vestmannaeyjum. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur hér í þinginu að fá umræðu um þetta mál, að í næstu viku verði sérstök umræða hér í þessum sal og að þingið finni svigrúm til þess að ræða þetta mikilvæga mál um eina stærstu verstöð landsins þar sem tæplega 5.000 manns búa. Ef versta sviðsmyndin teiknast upp þá þyrftu þeir jafnvel að yfirgefa heimili sín og við þurfum að freista alls til að koma í veg fyrir að slíkt gerist.